Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Austurlands

Mál nr. S-19/2008:

Ákæruvaldið

(Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)

gegn

Kjartani Erni Haukssyni

(Jón Jónsson hdl)

Karlmaður sakfelldur fyrir líkamsárás.

Mál þetta, sem dómtekið var 19. febrúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Eskifirði, útgefinni 22. janúar 2008, á hendur Kjartani Erni Haukssyni, kt. 000000-0000, Ásvegi 25, Breiðdalsvík “fyrir líkamsárás á Fáskrúðsfirði, með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 7. október 2007, á bifreiðastæði við félagsheimilið Skrúð, tekið hálstak á Höskuldi Frey Hermannssyni, kt. 000000-0000, fellt hann í götuna og slegið hann þar nokkur hnefahögg í höfuð og andlit, með þeim afleiðingum að hann hlaut mar á augnloki ofan og neðan, hægra megin, sem náði út á kinnbein og aftur að eyra og mar í augntóft, augnloki og fleiður á kinnbeini vinstra megin og blóðnasir.

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940, sbr. breytingarlög.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”

Af hálfu ákærða er þess aðallega krafist að refsing verði látin niður falla með vísan til 2. mgr. 12. gr. eða 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, til vara að ákvörðun refsingar verði frestað skilorðsbundið og til þrautavara að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög leyfa. Þá er þess krafist að verjanda verði ákvörðuð lágmarksþóknun.

Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.

Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum eins og því er lýst í ákæru. Þykir með játningu ákærða sem á sér stoð í gögnum málsins sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem ákært er fyrir og er brot hans réttilega heimfært til refsiákvæða í ákærunni.

Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki áður gerst brotlegur.

Ekki er fallist á að 2. mgr. 12. gr. almennra hegningarlaga eigi við í máli þessu. Við ákvörðun refsingar er hins vegar litið til þess að samkvæmt framburði nokkurra vitna átti brotaþoli upptök að árás ákærða með ertingum og beinni árás. Þá er litið til þess að ákærði hefur frá upphafi játað brot sitt hreinskilningslega. Til refsiþyngingar er hins vegar að árás ákærða var harkaleg og er þá hafður í huga framburður vitna um að ákærði hafi slegið brotaþola í höfuðið nokkrum sinnum á meðan hann lá meðvitundarlaus á jörðinni og gat ekki varið sig. Í ljósi alls framangreinds og með hliðsjón af 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en þar sem ákærði hefur ekki áður gerst brotlegur þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði sakarkostnað að fjárhæð 63.784 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Jónssonar hdl., sem þykir hæfilega ákveðin að fjárhæð 53.784 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dóm þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri.

Dómsorð:

Ákærði, Kjartan Ernir Hauksson, sæti fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar er frestað og skal hún falla niður að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði sakarskostnað að fjárhæð 63.784 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Jónssonar hdl., að fjárhæð 53.784 krónur.

Ragnheiður Bragadóttir