Héraðsdómur Austurlands
Dómur 8. desember 2006.
Mál nr. S-179/2006:
Ákæruvaldið
(Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)
gegn
Anton Bjarni Vilhjálmssyni
(Jón Jónsson hdl)
Útdráttur
A, sem var tæplega 17 ára gamall þegar brotið var framið, var sakfelldur fyrir líkamsárás. Refsing ákveðin fangelsi í 2 mánuði skilorðsbundið í 2 ár.
Mál þetta, sem dómtekið var 5. desember sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Eskifirði, útgefinni 7. nóvember 2006 á hendur Rafni Helgasyni, kt. 000000- 0000, Fögruhlíð 21, Eskifirði og Antoni Bjarna Vilhjálmssyni, kt. 000000-0000, Bakkastíg 5, Eskifirði “fyrir líkamsárás, á Eskifirði, með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 11. júní 2006, austan við verslunina Sparkaup, Strandgötu 50, í félagi, ráðist á Keith Fox kennitala 000000-0000, og slegið hann hvor sitt hnefahögg í andlitið, og Anton Bjarni síðan tekið hann hálstaki og fellt hann í jörðina og slegið hann a.m.k. eitt hnefahögg í andlitið og slegið höfði hans við jörðina og ákærði Rafn síðan stappað með fætinum nokkrum sinnum ofan á andlit hans, allt með þeim afleiðingum að hann hlaut glóðarauga bæði hægra og vinstra megin, bólgu í hlustargang í vinstra eyra, mikið mar og bólgu á og við nef, bein sem liggja á milli augntófta og sáldbeina brotnuðu og það blæddi inn á kinnholur beggja vegna.
Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. breytingarlög Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.”
Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.
Þáttur ákærða Rafns Helgasonar var klofinn frá máli þessu við þingfestingu málsins og hlaut mál hans númerið S-182/2006. Dómur var kveðinn upp í því máli 22. nóvember sl. og var refsing ákærða Rafns ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum eins og því er lýst í ákæru. Þykir með játningu ákærða, sem á sér stoð í gögnum málsins, sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem greinir í ákæru og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærði hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.
Við ákvörðun refsingar er litið til skýlausrar játningar ákærða og ungs aldurs hans, en hann var aðeins 16 ára gamall þegar hann braut af sér. Er þetta virt ákærða til refsimildunar. Á hinn bóginn er litið til þess að atlaga ákærða að brotaþola var hættuleg og hefði hæglega getað valdið enn alvarlegra líkamstjóni en raun varð á. Þá er litið til þess að atlagan var tilefnislaus og gerð í félagi með öðrum. Telja verður að ákærðu hafi báðir átt jafnan þátt í árásinni. Með hliðsjón af framangreindu og sérstaklega með tilliti til ungs aldurs ákærða þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Með hliðsjón af ungum aldri ákærða og þess að hann hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða hegðun þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði sakarkostnað að fjárhæð 72.250 krónur, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Jóns Jónssonar hdl., sem þykja hæfilega ákveðin 62.250 krónur, þ.m.t. virðisaukaskattur.
Dóm þennan kveður upp Ragnheiður Bragadóttir dómstjóri.
Dómsorð:
Ákærði, Anton Bjarni Vilhjálmsson, sæti fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar er frestað og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði sakarkostnað að fjárhæð 72.250 krónur, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Jónssonar hdl., að fjárhæð 62.250 krónur.
Ragnheiður Bragadóttir