Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-415/2006:

Ákæruvaldið

(Ólafur Þór Hauksson sýslumaður)

gegn

Finni Kristjáni Traustasyni

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing.

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og dæmdur til greiðslu sektar.

Mál þetta er höfðað af sýslumanninum á Akranesi með ákæru 20. nóvember 2006 á hendur ákærða, Finni Kristjáni Traustasyni, Brattholti 1 í Hafnarfirði. Málið var dómtekið 12. desember sama ár.

Í ákæruskjali segir að málið sé höfðað gegn ákærða „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 8. júlí 2006, haft í sínum vörslum 0,23 g af tóbaksblönduðu hassi í bifreiðinni ZT-181 er lögreglan hafði afskipti af ákærða í bifreiðinni kyrrstæðri í bifreiðastæði við Sóleyjargötu 1, Akranesi, og fann efnið við leit í bifreiðinni fyrir utan lögreglustöðina á Akranesi.

Brot ákærða þykir varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, lög 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar. Þess er jafnframt krafist að ofangreind 0,23 g af tóbaksblönduðu hassi verði gerð upptæk með dómi samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög 68/2001 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði sótti hvorki þing er málið var þingfest né tilkynnti um forföll. Verður málið því dæmt samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991, enda var þess getið í fyrirkalli, sem ákærða var birt sjálfum á löglegan hátt, að svo mætti með málið fara. Með vísan til þess og sakargagna verður ákærði sakfelldur fyrir að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök og réttilega er fært til refsiákvæða í ákæruskjali.

Refsing ákærða, sem er með hreint sakavottorð, þykir hæfilega ákveðin 30.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Með vísan til þeirra lagaákvæða sem greinir í ákæru verður fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins.

Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri málsins.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan en uppsaga dómsins hefur dregist lítillega vegna embættisanna dómarans.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Finnur Kristján Traustason, greiði 30.000 króna sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd inna fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Ákærði sæti upptöku á 0,23 g af tóbaksblönduðu hassi.

Benedikt Bogason