Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 24. febrúar 2008.
Mál nr. S-31/2008:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Arkadiusz Krzysztof Kujoth
svohljóðandi
d ó m u r:
Mál
þetta, sem þingfest var þann 21. febrúar sl. og dómtekið sama dag, var höfðað
með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur
Arkadiusz Krzysztof Kujoth, kt. 000000-0000, Hjallabraut 4, Þorlákshöfn,
„fyrir eignaspjöll og umferðarlagabrot
með
því að hafa, að kvöldi föstudagsins 14. júlí eða laugardagsins 15. júlí 2006, í
porti við Ísnet í Þorlákshöfn ekið bifreiðinni BM-143 um portið, án þess að
hafa öðlast ökuréttindi, m.a. á fiskikör og afskráða rauða Toyotu bifreið, með
þeim afleiðingum að bifreiðarnar skemmdust.
Telst
brot ákærða varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1.
mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Ingólfur
Þorbergsson kt. 000000-0000 gerir kröfu um að ákærða verði gert að greiða kr.
230.000 í skaðabætur ásamt vöxtum. Guðmundur Ásgrímsson kt. 000000-0000, gerir
kröfu um að ákærða verði gert að greiða kr. 30.000 í skaðabætur ásamt vöxtum.“
Ákærði kom fyrir dóminn ásamt Hilmari
Ingimundarsyni hæstaréttarlögmanni sem skipaður var verjandi hans. Ákærði
játaði að hafa ekið bifreiðinni í umrætt sinn en neitaði að hafa valdið
skemmdum á fiskikörum og afskráðri rauðri Toyotu. Þá mótmælti ákærði
bótakröfunni. Málið var því tekið til dóms.
Um
málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði ók bifreiðinni án þess að
hafa öðlast ökuréttindi og er það brot réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði
hefur með þeirri háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Gegn neitun ákærða um
að hafa valdið skemmdum á fiskikörum og Toyotabifreið eins og greinir í ákæru
verður ákærði ekki sakfelldur fyrir þá háttsemi, enda eru engin gögn sem styðja
þá háttsemi hans.
Ákærði var
(Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð
Bifreiðir. Eignaspjöll. Ökuréttur.
Útdráttur
Ákært fyrir eignaspjöll og að aka án réttinda. Sýknað vegna eignaspjalla en ákvörðun refsingar að öðru leyti frestað skilorðsbundið í eitt ár.
Mál þetta, sem þingfest var þann 21. febrúar sl. og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 4. febrúar 2008, á hendur Arkadiusz Krzysztof Kujoth, kt. 000000-0000, Hjallabraut 4, Þorlákshöfn, „fyrir eignaspjöll og umferðarlagabrot með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 14. júlí eða laugardagsins 15. júlí 2006, í porti við Ísnet í Þorlákshöfn ekið bifreiðinni BM-143 um portið, án þess að hafa öðlast ökuréttindi, m.a. á fiskikör og afskráða rauða Toyotu bifreið, með þeim afleiðingum að bifreiðarnar skemmdust.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Ingólfur Þorbergsson kt. 000000-0000 gerir kröfu um að ákærða verði gert að greiða kr. 230.000 í skaðabætur ásamt vöxtum. Guðmundur Ásgrímsson kt. 000000-0000, gerir kröfu um að ákærða verði gert að greiða kr. 30.000 í skaðabætur ásamt vöxtum.“
Ákærði kom fyrir dóminn ásamt Hilmari Ingimundarsyni hæstaréttarlögmanni sem skipaður var verjandi hans. Ákærði játaði að hafa ekið bifreiðinni í umrætt sinn en neitaði að hafa valdið skemmdum á fiskikörum og afskráðri rauðri Toyotu. Þá mótmælti ákærði bótakröfunni. Málið var því tekið til dóms.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði ók bifreiðinni án þess að hafa öðlast ökuréttindi og er það brot réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með þeirri háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Gegn neitun ákærða um að hafa valdið skemmdum á fiskikörum og Toyotabifreið eins og greinir í ákæru verður ákærði ekki sakfelldur fyrir þá háttsemi, enda eru engin gögn sem styðja þá háttsemi hans.
Ákærði var 16 ára þegar hann framdi brot þetta og gekkst hann strax greiðlega við því fyrir lögreglu. Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærði ekki sætt refsingu áður. Þá verður, við ákvörðun refsingar, að líta til þess að langt er um liðið frá því að brotið átti sér stað. Brotið var framið 14. júlí 2006 og rannsókn málsins lauk 24. júlí sama ár en þá var lögð fram refsikrafa hjá lögreglunni. Ákæra var ekki gefin út fyrr en 4. febrúar 2008. Með hliðsjón af aldri ákærða, því að hann játaði brot sitt greiðlega og þess að langt er um liðið frá því að brotið var framið, þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar skilorðsbundið og þykir skilorðstíminn hæfilega ákveðinn eitt ár eins og segir nánar í dómsorði.
Með vísan til 165. gr. laga um meðferð opinberra mála ber að dæma ákærða til greiðslu hluta sakarkostnaðar sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, sem þykir hæfileg 74.700 krónur og skal ákærða gert að greiða einn fimmta hluta sakarkostnaðarins en fjórir fimmtu hlutar skulu greiddir úr ríkissjóði. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
Bótakröfunni er vísað frá dómi.
Gunnar Örn Jónsson fulltrúi sótti mál þetta af hálfu ákæruvaldsins.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákvörðun um refsingu ákærða, Arkadiusz Krzysztof Kujoth, er frestað þannig að hún falli niður að liðnu einu ári frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði einn fimmta hluta sakarkostnaðar sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 74.700 krónur, en fjórir fimmtu hlutar hans skulu greiddir úr ríkissjóði.
Bótakröfum Ingólfs Þorbergssonar og Guðmundar Ásgrímssonar er vísað frá dómi.
Ástríður Grímsdóttir