Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 7. maí 2007.
Mál nr. S-186/2007:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
A
svofelldur
d ó m u r :
(sjálfur)
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir að hafa í vörslum sínum og reynt að smygla sveppum. LSD og hassi inn í fangelsi.
Mál þetta, sem þingfest var þann 3. maí sl., og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 18. apríl 2007, á hendur A ,,fyrir fíkniefnabrot og brot á lögum um fullnustu refsinga með því að hafa, miðvikudaginn 13. september 2006 haft í vörslu sinni og reynt að smygla inn til fanga í fangelsinu að Litla Hrauni, Eyrarbakka, 5,94 g af sveppum sem innihéldu ávana- og fíkniefnið psilocybin, 4 skömmtum af LSD og 3,84 g af hassi, sem ákærði hafði meðferðis í úlpuvasa sínum en framvísaði til fangavarða eftir að fíkniefnahundur hafði „merkt“ á ákærða í fangelsinu.
Telst brot ákærða varða við 81. gr. laga um fullnustu refsingar nr. 49/2005 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 10297) en lagt var hald á greind fíkniefni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði kom fyrir dóminn við þingfestingu málsins og játaði brot sitt greiðlega. Játning ákærða er í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er ákærða, sem óskaði ekki eftir skipun verjanda, og sækjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Í matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræðum, dagsettri 29. mars 2007, kemur fram að ofangreindir sveppir hafi innihaldið 1,1% af efninu psilocybin en efnið telst til ávana- og fíkniefna, sbr. 2. gr. laga nr. 65/1974 og reglugerð nr. 233/2001, og er á lista yfir efni sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði.
Samkvæmt sakavottorði hefur ákærða fjórum sinnum áður frá árinu 2000 verið gerð refsing fyrir brot á umferðarlögum og hann sviptur ökurétti jafnoft, síðast þann 25. október 2005. Auk þess hefur ákærða einu sinni verið gerð refsing fyrir brot gegn hegningarlögum og þann 25. maí 2005 gekkst ákærði undir sátt vegna brota á lögum um ávana- og fíkniefni og var gert að greiða 28.000 króna sekt til ríkissjóðs.
Þykir refsing ákærða nú hæfileg 180.000 króna sekt til ríkissjóðs sem honum ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæta ella fangelsi í fjórtán daga.
Upptæk skulu gerð 5,94 grömm af sveppum, 4 skammtar af LSD og 3,84 grömm af hassi, allt samkvæmt efnaskrá lögreglu númer 10297.
Með vísan til 165. gr. laga um meðferð opinberra mála skal ákærða gert að greiða allan sakarkostnað sem er vegna rannsóknar á efnum samkvæmt yfirliti um sakarkostnað, 76.222 krónur.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, A greiði 180.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæti ella fangelsi í fjórtán daga.
Ákærði sæti upptöku á 5,94 grömmum af sveppum, fjórum skömmtum af LSD og 3,84 grömmum af hassi. Ákærði greiði allan sakarkostnað, 76.222 krónur.
Ástríður Grímsdóttir