Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 26. apríl 2007.
Mál nr. S-141/2007:
S-141/2007:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
A
svofelldur
d ó m u r :
(sjálf)
Útdráttur
Ákærða dæmd til greiðslu 100.000 króna sektar, gert að sæta upptöku á fíkniefnum og dæmd til að greiða allan sakarkostnað.
Mál þetta, sem þingfest var í dag og dómtekið sama dag, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 15. mars 2007, á hendur A ,,fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot
I.
með því að hafa, skömmu fyrir miðnætti föstudaginn 29. desember 2006 haft í vörslu sinni á heimili sínu að […]; 0,32 gr. af tóbaksblönduðu kannabisefni sem ákærða framvísaði til lögreglu umrætt sinn og 0,93 gr. af hassi sem lögregla fann við húsleit í stofu íbúðarinnar.
Telst brot ákærðu varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum
II.
með því að hafa, að morgni laugardagsins 30. desember 2006 ekið bifreiðinni XXX um Austurveg á Selfossi, óhæf til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrahýdrókannabínólsýru.
Telst brot ákærðu varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50, 1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til að sæta sviptingu ökuréttar, samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 44, 1993, lög nr. 57, 1997, lög nr. 23, 1998, lög nr. 132, 2003, lög nr. 84, 2004 og lög nr. 66, 2006 og til að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum sbr. ákærulið I. (efnaskrá nr. 10785), samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001“ Ákærði mætti við þingfestingu málsins og játaði sök.
Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot það sem greinir í ákæru og það er réttilega fært til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði ákærðu þá hefur henni þrívegis verið gerð refsing vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni frá 30. júlí 2006. Þá hefur henni einnig tvívegis verið gerð refsing fyrir brot á umferðarlögum nr. 50/1987. Samkvæmt matsgerð sem liggur frammi í málinu frá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði mældist ekki tetrahýdrókannabínól í blóði en í þvagi fannst tetrahýdrókannabínólsýra. Tetrahýdrókannabínól er hið virka efni í kannabis og er tetrahýdrókannabínólsýra óvirkt umbrotsefni þess í þvagi. Í 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga segir að mælist ávana- og fíkniefndi skv. 1. mgr. í blóði eða þvagi ökumanns telst hann vera undir áhrifum ávana-og fikniefna og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega.
Með vísan til þessa hefur ákærða unnið sér til refsingar og þykir refsing hæfilega ákvörðuð 100.000 króna sekt til ríkissjóðs sem ákærða greiði innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæta ella fangelsi í átta daga. Ákærða skal svipt ökurétti í þrá mánuði frá birtingu dóms að telja.
Ákærða skal sæta upptöku á 0,32 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,93 grömmum af hassi.
Með vísan til 165., sbr. 164. gr. laga um meðferð opinberra mála skal ákærðu gert að greiða allan sakarkostnað sem er vegna rannsóknar á blóði ákærðu og matsgerðar, 110.453 krónur.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærða, A, greiði 100.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms að telja en sæti ella fangelsi í átta daga. Ákærða skal svipt ökurétti í þrjá mánuði frá birtingu dóms að telja.
Ákærða sæti upptöku á 0,32 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni og 0,93 grömmum af hassi. Ákærða greiði allan sakarkostnað, 110.453 krónur.
Ástríður Grímsdóttir