Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-349/2008:

D Ó M U R

nr. S-349/2008:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Pavel Piotr Dyrga

Ár 2008,

föstudaginn 28. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í

Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur

Málið er höfðað með

ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  13. mars sl. á hendur ákærða, Pawel Piotr

Dyrga, pólskum ríkisborgara, fd. 9. apríl 1975, með lögheimili í Póllandi,

dvst. Hjálpræðishernum, Kirkjustræti 2, Reykjavík, „fyrir þjófnað, með því að

hafa að morgni sunnudagsins 24. febrúar 2008, brotist inn í skartgripaverslun

Hermanns Jónssonar að Veltusundi 3 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu í

versluninni með slaghamri og stolið þaðan 9 demantshringum, þremur pörum af

demantseyrnalokkum og tveimur demantsarmböndum, samtals að verðmæti kr.

15.290.000.

Telst þetta varða

við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að

ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Málavextir

Ákærði

(Jón Höskuldsson hrl)

Fangelsi. Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Þjófnaður.

Karlmaður dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundið, fyrir þjófnað úr skartgripaverslun.

Ár 2008, föstudaginn 28. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 349/2008:  Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson) gegn Pawel Piotr Dyrga (Jón Höskuldsson hrl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  13. mars sl. á hendur ákærða, Pawel Piotr Dyrga, pólskum ríkisborgara, fd. 9. apríl 1975, með lögheimili í Póllandi, dvst. Hjálpræðishernum, Kirkjustræti 2, Reykjavík, „fyrir þjófnað, með því að hafa að morgni sunnudagsins 24. febrúar 2008, brotist inn í skartgripaverslun Hermanns Jónssonar að Veltusundi 3 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu í versluninni með slaghamri og stolið þaðan 9 demantshringum, þremur pörum af demantseyrnalokkum og tveimur demantsarmböndum, samtals að verðmæti kr. 15.290.000.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis.  Brot ákærða er verulegt og þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði.  Rétt er að fresta því að framkvæma 9 mánuði af refsingu þessari og ákveða að sá hluti hennar falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Jóni Höskuldssyni hrl., 50.000 krónur í málsvarnarlaun, sem dæmast með virðisaukaskatti.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Pavel Piotr Dyrga, sæti fangelsi í  tólf mánuði.  Framkvæmd níu mánaða af  refsingunni er frestað og fellur sá hluti hennar niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð.

Frá refsingunni dregst fjögurra daga gæsluvarðhaldsvist.

Ákærði greiði verjanda sínum, Jóni Höskuldssyni hæstaréttarlögmanni, 50.000 krónur í málsvarnarlaun.

Pétur Guðgeirsson.