Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 20. apríl 2026.
Mál nr. S-562/2026:
Ákæruvaldið
(Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Wilson Hernan Ramirez Castano
(Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi og gerð 40.000 króna sekt, fyrir akstur án þess að hafa öðlast ökurétt og í blekkingarskyni framvísað grunnfölsuðu ökuskírteini.
Dómur
Mál þetta var þingfest 16. mars 2026 og dómtekið 27. mars sama ár. Málið höfðaði Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 20. febrúar 2026 á hendur ákærða, Wilson Hernan Ramirez Castano, kt. 000000-0000, ríkisborgara […],
I.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 9. desember 2024, ekið bifreiðinni […], án gildra ökuréttinda, eftir Krýsuvíkurvegi og að Reynimel í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
Fyrir skjalafals, með því að hafa á sama stað og tíma og greinir í ákærulið 1, í blekkingarskyni framvísað við lögreglu grunnfölsuðu ökuskírteini nr. […], ánöfnuðu ákærða, fd. […], með gildistíma frá 13.03.2016 til 13.03.2026. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. laga nr. 77/2019.
III.
Fyrir dómi játaði ákærði afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst verjandi þóknunar samkvæmt tímaskýrslu.
Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum máls, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefið að sök í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.
Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi. Að því gættu þykir refsing hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi. Þá greiði ákærði 40.000 króna sekt til ríkissjóðs. Greiði ákærði ekki dæmda fésekt innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu skal koma í hennar stað 4 daga fangelsi.
Ekki þykja skilyrði til að svipta ákærða ökurétti samkvæmt ákæru. Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sakarkostnaður ákæruvalds er enginn. Féll því ekki annar kostnaður til við rekstur máls en þóknun skipaðs verjanda ákærða á rannsóknarstigi máls og hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 450.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Wilson Hernan Ramirez Castano, sæti fangelsi í 30 daga.
Ákærði greiði 40.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella 4 daga fangelsi.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Einars Odds Sigurðssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 450.000 krónur.
Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir