Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 19. nóvember 2025.
Mál nr. S-498/2024:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Egidijus Smatauskas og
(Júlí Ósk Antonsdóttir lögmaður)
Judita Kulikauskiene
(Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)
Útdráttur
Gegn ákærðu báðum, fyrir að hafa í sameiningu miðvikudagskvöldið 1. maí 2024, stolið snyrtivörum úr versluninni, samtals að verðmæti 53.896 krónur. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Dómur
Mál þetta, sem var dómtekið 19. nóvember 2025, síðan endurflutt og dómtekið að nýju þann 10. febrúar sl., var höfðað með sjö ákærum Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra; fimm útgefnum 20. nóvember 2024, einni útgefinni 17. desember 2024 og einni útgefinni 23. janúar 2025, gegn Egidijus Smatauskas, kt. […], […], Reykjavík, Judita Kulikauskiene, kt. […], […], Reykjavík og Vygantas Smatauskas, kt. […], […], fyrir hegningarlagabrot, umferðarlagabrot og brot á ávana- og fíkniefnalögum, eins og nánar greinir hér að neðan: Fyrsta ákæran er dagsett 20. nóvember 2024 (mál nr. 316-2024-7367) gegn öllum ákærðu fyrir: „eftirtalin þjófnaðarbrot, sem þau frömdu í verslun Krónunnar við Tryggvabraut 8 á Akureyri í maí 2024: 1. Gegn ákærðu Egidijus og Judita, fyrir að hafa fimmtudaginn 2. maí staðið saman að því að stela matvælum og annars konar vörum að ótilgreindu verðmæti úr verslunni[svo]. 2. Gegn ákærðu Egidijus og Vygantas, fyrir að hafa sunnudaginn 5. maí, staðið saman að því að stela úr versluninni matvælum og annars konar vörum, meðal annars dýrum ostum, blómum og grænmeti, en nákvæmt verðmæti þýfisins er ekki vitað. 3. Gegn ákærðu Egidijus og Judita, fyrir að hafa mánudaginn 6. maí, staðið saman að því að stela matvælum og annars konar vörum að ótilgreindu verðmæti úr versluninni. 4. Gegn ákærðu Egidijus og Vygantas, fyrir að hafa síðar sama dag 6. maí, staðið sama að því að stela matvælum og annar konar vörum, meðal annars dýrum nautasteikum, kjúklingakjöti, mjólkurvörum og fleiru, en verðmæti þýfisins er ótilgreint. 5. Gegn ákærðu Egidijus og Judita, fyrir að hafa fimmtudaginn 9. maí, staðið saman að því að stela snyrtivörum að ótilgreindu verðmæti úr versluninni. 6. Gegn ákærða Egidijus, fyrir að hafa sunnudaginn 10. maí, stolið matvælum að ótilgreindu verðmæti úr versluninni.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Önnur ákæran er dagsett 20. nóvember 2024 (mál nr. 316-2024-5892) gegn ákærðu, Egidijus og Judita fyrir: „eftirtalin þjófnaðarbrot sem þau frömdu í félagi eða Egidijus einn í verslun Hagkaupa að Furuvöllum 17 á Akureyri:
I.
Gegn ákærðu báðum, fyrir að hafa í sameiningu miðvikudagskvöldið 1. maí 2024, stolið snyrtivörum úr versluninni, samtals að verðmæti 53.896 krónur.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
II.
Gegn ákærðu báðum, fyrir að hafa í sameiningu fimmtudagskvöldið 2. maí 2024, stolið nærfatnaði og snyrtivörum, samtals að verðmæti 48.014 krónur.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
III.
Gegn ákærðu báðum, fyrir að hafa í sameiningu laugardaginn 3. maí 2024, stolið snyrtivörum, samtals að verðmæti 66.997 krónur.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
IV.
Gegn ákærða Egidijus, fyrir að hafa mánudagskvöldið 5. maí 2024, stolið snyrtivörum fyrir samtals 49.898 krónur.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
V.
Gegn ákærða Egidijus, fyrir að hafa miðvikudagskvöldið 7. maí 2024, stolið snyrtivörum samtals að verðmæti 59.296 krónur. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
VI.
Gegn ákærðu báðum, fyrir að hafa föstudagskvöldið 9. maí 2024, stolið snyrtivörum úr versluninni fyrir samtals 23.398 krónur. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Þriðja ákæran er dagsett 20. nóvember 2024 (mál nr. 316-2024-5610) gegn ákærðu Judita og Egidijus fyrir: „þjófnað með því að hafa laugardaginn 11. maí 2024, í samstarfi og sameiningu stolið snyrtivörum úr verslun Lyf og heilsu í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi á Akureyri, samtals að verðmæti 299.060 krónur.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar“ Fjórða ákæran er dagsett 20. nóvember 2024 (mál nr. 316-2024-7321) gegn ákærða Egidijus fyrir: „umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti vestur um þjóðveg 1 við Leiru á Akureyri.
Telst þetta allt varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Fimmta ákæran er dagsett 20. nóvember 2024 (mál nr. 316-2024-4346) gegn ákærða Vygantas fyrir: „brot á ávana- og fíkniefnalögum með því að hafa sunnudaginn 12. maí 2024, verið með í vörslum sínum samtals 1,76 grömm af maríhúana, en lögreglan fann efnið á þáverandi dvalarstað ákærða að […] á Akureyri.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 14 gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta upptöku á fíkniefnum sem lögreglan lagði hald á og tilgreind eru í efnaskrá nr. 53.869, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.” Sjötta ákæran er dagsett 17. desember 2024 (mál nr. 316-2024-4458) gegn ákærðu Egidijus og Vygantas fyrir: „eignaspjöll, með því að hafa sunnudaginn 12. maí 2024, valdið eftirtöldum skemmdum í fangaklefa á lögreglustöðinni við Þórunnarstræti á Akureyri: 1. Ákærði Egidijus, fyrir að hafa skemmt hurð að fangaklefa sem hann var vistaður í og rifið niður loftljós sem var í klefanum og eyðilagt það og síðan farið að fikta í rafmagnsvírum sem hengu niður úr loftinu eftir að hann hafði rifið ljósið niður með þeim afleiðingum að rafmagnstruflanir urðu á lögreglustöðinni. 2. Gegn Vygantas fyrir að hafa rifið niður og eyðilagt loftljós í fangaklefa sem hann var vistaður í vegna rannsóknar sakamáls.
Telst þetta varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Sjöunda ákæran er dagsett 23. janúar 2025 (mál nr. 316-2024-427) gegn öllum ákærðu fyrir: „eftirtalin þjófnaðarbrot og peningaþvætti:
I.
Gegn ákærðu öllum fyrir að hafa sunnudaginn 5. maí 2024, stolið vörum og fatnaði að verðmæti 128.500 krónum, úr versluninni Sport Direct, Austursíðu 2 á Akureyri.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Gegn ákærðu, Judita og Egidijus, fyrir að hafa í sameiningu, laugardaginn 11. maí 2024, gert tilraun til að stela fatnaði og vörum að verðmæti 125.420 krónum úr sömu verslun Sport Direct, en ákærðu voru stöðvuð að starfsfólki verslunarinnar og flúðu þá af vettvangi án þeirra vara sem þau voru búin að safna saman.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr., sbr. 20. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
III.
Gegn ákærðu Egidijus og Vygantas fyrir að hafa í sameiningu, fimmtudaginn 2. maí 2024, stolið tveimur símum af gerðinni Samsung Galaxy Fold5, samtals að verðmæti 619.988 krónur, úr verslun Elko, Tryggvabraut 18 á Akureyri.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV.
Gegn ákærðu Egidijus og Vygantas, fyrir að hafa laugardaginn 11. maí 2024, í sameiningu stolið tveimur Samsung Galaxy Tab S9 FE (6 G +128 G) spjaldtölvum, samtals að verðmæti 189.990 krónur úr sömu verslun Elko á Akureyri.
Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
V.
Gegn ákærðu Egidijus og Judita, fyrir að hafa á tímabilinu 15. desember 2023 til 15. maí 2024, aflað sér saman ávinnings með þjófnuðum og sölu þýfis eða öðrum refsiverðum brotum, samtals að fjárhæð 5.064.700 krónur.
Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er gerð sú krafa að ákærðu Egidijus og Judita sæti upptöku á 123.000 krónum sem lögreglan lagði hald á og telur vera hluti af ávinningi þeirra af brotastarfseminni eða svari til hluta af ávinningi þeirra af brotum sínum, samkvæmt 1. mgr., sbr. 2. mgr. 69. gr., 1. mgr. 69. gr. b og 69. gr. c, almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum.” Ákærurnar voru þingfestar og sameinaðar í eitt mál á dómþingi 5. mars 2025 í þeirri röð sem að framan greinir. Verður sömu röð fylgt við úrlausn málsins.
II.
Í fyrstu ákæru er tekin upp einkaréttarkrafa Krónunnar ehf., kt. […], Dalvegi 10-14, Kópavogi, sem gerir „bótakröfur á hendur ákærðu að fjárhæð kr. 69.098 krónur, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá 2. maí 2024, til 9. september 2024, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir héraðsdómi að mati dómsins, eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings í málinu.
- Ákærði Egidijus verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 59.296 krónur, með vöxtum og dráttarvöxtum frá 7. maí 2024, til greiðsludags, sbr. lagatilvísun hér að framan. 2. Ákærðu verði bæði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 23.398 krónur, með vöxtum og dráttarvöxtum frá 9. maí 2024, til greiðsludags, sbr. lagatilvísun hér að framan.“ Í annarri ákæru er tekin upp einkaréttarkrafa Haga hf, kt. […], Holtavegi 10, Reykjavík sem gerir eftirtaldar bótakröfur á hendur ákærðu Egidijus og Judita: „1. Ákærðu verði bæði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 53.896 krónur, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001, frá 1. maí 2024, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. 2. Ákærðu verði bæði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 48.014 krónur, með vöxtum og dráttarvöxtum frá 2. maí 2024 til greiðsludags, sbr. lagatilvísun hér að framan. 3. Ákærðu verði bæði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 66.997 krónur með vöxtum og dráttarvöxtum frá 4. maí 2024 til greiðsludags, sbr. lagatilvísun hér að framan. 4. Ákærði Egidijus verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 49.898 krónur, með vöxtum og dráttarvöxtum frá 5. maí 2024, til greiðsludags, sbr. lagatilvísun hér að framan. 5. Ákærði Egidijus verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 59.296 krónur, með vöxtum og dráttarvöxtum frá 7. maí 2024, til greiðsludags, sbr. lagatilvísun hér að framan. 6. Ákærðu verði bæði dæmd til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð 23.398 krónur, með vöxtum og dráttarvöxtum frá 9. maí 2024, til greiðsludags, sbr. lagatilvísun hér að framan.
Þá er í öllum kröfunum krafist málskostnaðar að skaðlausu samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi eða að mati dómsins, að teknu tilliti til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.“ Í þriðju ákæru er tekin upp einkaréttarkrafa Lyf og heilsu hf., kt. […], Síðumúla 20, Reykjavík gegn ákærðu Judita og Egidijus, sem gerir: „bótakröfu á hendur ákærðu að fjárhæð 299.060 krónur, auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá 11. maí 2024, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. III kafla vaxtalaga til greiðsludags.“ Í sjöttu ákæru er tekin upp einkaréttarkrafa Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, kt. […], Borgartúni 26, Reykjavík, gegn ákærðu Egidijus og Vygantas sem gerir: „bótakröfu á hendur ákærðu að fjárhæð 179.230 krónur, auk vaxta samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá 12. maí 2024, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. III. kafla vaxtalaga til greiðsludags. Jafnframt er krafist kostnaðar af gerð kröfu þessara samkvæmt mati dómsins.“ Í sjöundu ákæru eru teknar upp eftirfarandi einkaréttarkröfur: „1. Elko, kt. […] gerir bótakröfu á hendur Egidijus og Vygantas að fjárhæð 619.988 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 2. maí 2024 til 5. september 2024 og samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá 5. september 2024, til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir Héraðsdómi að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings.
- Elko, kt. […] gerir bótakröfu á hendur Egidijus og Vygantas að fjárhæð 189.990 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 11. maí 2024 til 6. september 2024 og samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá 6. september 2024, til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir Héraðsdómi að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi komi til málflutnings.“
III.
Við upphaf aðalmeðferðar málsins óskaði fulltrúi ákæruvaldsins að gera neðangreindar leiðréttingar varðandi þrjár ákærur málsins. Í fyrstu ákæru lið 6 skuli standa „föstudaginn 10. maí 2024“ í stað „sunnudaginn 10. maí 2024.“ Í fjórðu ákæru vanti dagsetningu í lýsingu málavaxta, en hið rétta sé „föstudaginn 10. maí 2024“. Í V. lið sjöundu ákæru komi fram fjárhæðin „5.064.700“, en þar eigi að standa „4.064.700“. Verjendur ákærðu gerðu ekki athugasemdir við þessar breytingar. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur gagnvart öllum ákærðu og greinir í viðkomandi ákærum, með framangreindum breytingum. Sex ákærur eru til meðferðar gagnvart ákærða, Egidijus nr. 1, 2, 3 , 4 , 6 og 7 , fjórar ákærur gagnvart Judita Kulikauskiene nr. 1 2, 3 og 7 og fjórar ákærur gagnvart Vygantas nr. 1, 5 , 6 og 7. Málið var dómtekið gagnvart ákærða, Vygantas, við aðalmeðferð málsins með vísun til útivistar hans á dómþingi þann 28. apríl 2025, samanber 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008. Ákærða, Judita, krefst frávísunar á V. lið sjöundu ákæru. Að öðru leyti neita ákærðu Egidijus og Judita bæði sök varðandi alla ákæruliði og krefjast aðallega sýknu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsingin verði skilorðsbundin. Þá krefjast þau þess að allur sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun skipaðra verjanda þeirra Ákærðu krefjast þess bæði að viðkomandi bótakröfum verði aðallega vísað frá dómi, en til vara að þær verði lækkaðar.
IV.
Málsatvik
Varðandi fyrstu ákæru Samkvæmt frumskýrslu lögreglu hafi ákærðu, Egidijus og Vygantas, verið handteknir þann 11. maí 2024 fyrir utan Krónuna við Tryggvabraut, Akureyri vegna gruns um þjófnað úr versluninni. Ákærða, Judita, var handtekin daginn eftir. Í kjölfarið hafi verið gerð húsleit að […], Akureyri í íbúð sem ákærðu höfðu til umráða til skamms tíma. Í kjölfarið voru gerðar húsleitir á fleiri stöðum, sem tengdust ákærðu, að […], Reykjavík og […], Reykjavík og gerð var leit í bifreiðinni […], sem er skráð eign ákærðu, Judita. Eftir að lögregla hafi fengið upptökur og fleiri gögn frá öryggisdeild Festis f.h. Krónunnar og hafi vaknað grunur um þjófnað ákærðu úr versluninni í sex skipti á tímabilinu 2. maí til 10. maí 2024, eins og greinir í ákæru. Í öllum tilvikum hafi ákærðu verið grunuð um hafa tekið matvæli og snyrtivörur að ótilgreindu verðmæti úr versluninni. Í málinu liggur fyrir upplýsingaskýrsla af skjáskotum úr upptökum úr eftirlitsmyndavélum Krónunnar, með skýringum og tímasetningum af ferðum ákærðu um verslunina. Myndirnar eru dagsettar 2. maí, 5. maí, 6. maí, 9. maí og 10. maí 2024. Samkvæmt áætlun starfsmanns Krónunnar út frá viðkomandi upptökum hafi ákærðu tekið úr versluninni að minnsta kosti samtals 69.098 krónum. Upptaka í öryggismyndavélum hafi að hluta legið niðri 2. maí 2024. Í flestum tilvikum hafi ákærðu farið á sjálfsafgreiðslukassa, en hafi einungs greitt fyrir vörurnar að litlum hluta og farið síðan út úr versluninni. Í rannsóknargögnum liggi fyrir yfirlit um úttektir af debetkorti ákærðu, Judita, í Krónunni á ofangreindu tímabili, sem sýni það sem hún keypti í viðkomandi skipti. Um hafi verið að ræða 10 úttektir af korti hennar samtals að fjárhæð 2.346 krónur og hafi hæsta einstaka úttektin verið innan við 600 krónur. Í skýrslu hjá lögreglu þann 25. júlí 2024 hafi ákærða, Judita, ekki kannast við þá einstaklinga sem komi fram á upptökum í versluninni 6. og 9. maí 2024 og kvaðst engu hafa stolið þar. Ákærði, Egidijus, kvaðst í skýrslu hjá lögreglu þann 25. júlí 2024 ekki kannast við þá einstaklinga sem kæmu fram á upptökum 5., 6, 9.og 10. maí 2024. Í málinu liggja fyrir þrjár húsleitarskýrslur, ásamt ljósmyndamöppum um haldlagða muni. Sú fyrsta varðar dvalarstað ákærðu að […], Akureyri, en þar var gerð húsleit þann 12. maí 2024. Einnig var gerð húsleit að […], Reykjavík, sem var heimili ákærðu, Judita og að […], Reykjavík, sem er skráð heimili ákærða, Egidijus. Þá var gerð leit í bifreiðinni […], sem var skráð eign ákærðu, Judita. Munaskrár haldlagðra muna liggja fyrir og auk þess viðkomandi ljósmyndamöppur. Varðandi aðra ákæru Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að kæra hafi borist frá Högum vegna ítrekaðra þjófnaða í Hagkaup, Akureyri á tímabilinu 1. maí til 11. maí 2024. Um hafi verið að ræða átta skipti, 1. maí, 2. maí, 3. maí, 4. maí, 5. maí, 7. maí, 9. maí og 11. maí 2024. Samkvæmt gögnum sem hafi fylgt kærunni hafi andvirði þýfisins verið samtals kr. 301.499. Meðfylgjandi hafi verið upptökur úr öryggismyndavélum í versluninni. Við nánari skoðun lögreglu hafi rökstuddur grunur vaknað að ákærðu, Egidijus og Judita, hefðu verið að verki. Ákærði, Egidijus, neitaði alfarið að tjá um sakarefnið í skýrslutöku hjá lögreglu þann 25. júlí 2024. Ákærði, Judita, neitaði að mestu að tjá um sakarefnið í skýrslutöku hjá lögreglu þann 25. júlí 2024 og kvaðst ekki geta þekkt einstaklinga á viðkomandi myndum. Hún kvaðst þó vera nokkuð viss um að hún væri á myndum frá 9. maí 2024, en þekkti ekki þann sem væri með henni. Hún kvaðst ekki geta upplýst hver hafi verið með debetkortið hennar þegar það var notað í versluninni til greiðslu á vörum á ofangreindum dögum. Varðandi þriðju ákæru Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að Lyf og heilsa Glerártorgi hafi kært tvo einstaklinga, karl og konu, fyrir þjófnað úr versluninni laugardaginn 11. maí 2024 á milli kl. 13:54 og 13:59. Samkvæmt gögnum sem hafi fylgt kærunni hafi andvirði þýfisins verið samtals kr. 299.060. Þar sem þjófavörn hafi verið á öllum vörunum gefi það til kynna að bónuspoki, sem karlinn var með, hafi verið sérútbúinn, þar sem þjófavarnarhlið hafi ekki farið í gang. Meðfylgjandi hafi verið myndir af gerendum. Við nánari skoðun lögreglu hafi rökstuddur grunur vaknað að ákærðu, Egidijus og Judita, hafi verið að verki. Við skýrslutöku hjá lögreglu þann 25. júlí 2024 hafi ákærða, Egidijus, verið sýnd viðkomandi myndbönd úr öryggismyndavélum og sýndar myndir af samskonar munum sem fundust við húsleit eftir handtöku ákærðu. Ákærði, Egidijus, kvaðst ekki þekkja sig á myndböndunum og viðurkenndi ekki að hafa stolið viðkomandi munum. Í lögregluskýrslu af ákærðu, Judita, þann 25. júlí 2024 voru henni sýnd viðkomandi myndbönd úr öryggismyndavélum og sýndar myndir af sambærilegum vörum, sem fundust við húsleit eftir handtöku ákærðu. Ákærð, Judita, kvaðst ekki kannast við aðila á myndböndunum og viðurkenndi ekki að hafa stolið viðkomandi munum. Ákærða var spurð út í húðflúr á vinstri hönd hennar sem líktist mikið húðflúri á vinstri hönd konunnar á myndbandinu. Ákærða kvað marga hafa eins húðflúr. Varðandi fjórðu ákæru Í frumskýrslu lögreglu hafi komið fram að við rannsókn á öðru máli hafi komið í ljós upptökur úr eftirlitsmyndavélum, sem hafi sýnt ákærða við akstur bifreiðarinnar […] þann 10. maí 2024 kl. 11:48 á Hringvegi rétt austan við Leirunesti á Akureyri. Lögreglumaður hafi þekkt ákærða sem ökumann bifreiðarinnar og Judita Kulikauskiene, sem farþega í framsæti. Hún hafi verið skráður eigandi bifreiðarinnar. Ákærði hafi ekki öðlast ökuréttindi og hafi einnig verið sviptur þeim. Í skýrslutöku hjá lögreglu þann 13. maí 2024 vegna rannsóknar á öðru máli um annars konar sakarefni kannaðist ákærði við að hafa komið á bifreiðinni […] til Akureyrar og hafi tilgangur ferðarinnar verið að skoða náttúruna, fossa, Mývatn, Akureyri og fleira. Í skýrslutöku hjá lögreglu þann 17. maí 2024 viðurkenndi hann að hafa ekið bifreiðinni norður til Akureyrar og hafi hann og ákærði, Vygantas, skipst á að keyra. Þau hafi síðan ferðast mikið á bifreiðinni fyrir norðan. Í skýrslutöku hjá lögreglu þann 25. júlí 2024 vegna þessa máls var borið undir ákærða skjáskot úr eftirlitsmyndavél við hringveg á Leiru á Akureyri þann 10. maí 2024 kl. 11:48. Hann kvaðst ekki þekkja bifreiðina […] og hvorki þekkja ökumann né farþega. Hann hafi neitað að hafa ekið á Akureyri á umræddum tíma, þrátt fyrir annan framburð í fyrri skýrslum vegna annarra mála, þar sem hann hafi gefið þær skýrslur undir þrýstingi frá lögreglu. Hann kvaðst vera með ökuréttindi sem hefðu verið gefin út á Nýja-Sjálandi, en gæti ekki framvísað þeim þar sem hann hefði verið svipur ökuréttindum þar til í mars nk. Í skýrslu hjá lögreglu þann 17. maí 2024 í öðru máli kvað ákærða, Judita, að ákærðu, Egidijus og Vygantas hafi skipst á að aka bifreiðinni […] á ferð þeirra frá Reykjavík til Akureyrar. Í skýrslu hjá lögreglu þann 25. júlí 2024 kvað ákærða, Judita, að fyrri framburður sinn um að ákærðu, Egidijus og Vygantas, hefðu ekið bifreiðinni […] væri rangur. Ákærða kvað ákærða, Vygantas hafa ekið, enda væri hann með ökuréttindi. Varðandi fimmtu ákæru Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að við húsleit að […], Akureyri, þann 12. maí 2024 í íbúð sem ákærði hafði dvalið í um tíma hafi fundist meint kannabisefni í smelluláspoka við skoðun á bakpoka. Í efnaskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dags. 19. júní 2024, kemur fram að viðkomandi efni hafði verið greint 1,76 gr. af marihúana. Ákærði, Vygantas, viðurkenndi vörslur þessa efnis í skýrslutöku hjá lögreglu þann 13. maí 2024. Ákærði kom ekki fyrir dóm þegar ákæran var þingfest, þrátt fyrir að viðkomandi ákæra hafi verið löglega birt fyrir honum. Varðandi sjöttu ákæru Samkvæmt skýrslum lögreglu hafi ákærðu, Egidijus og Vygantas verið handteknir á Akureyri að kvöldi laugardagsins 11. maí 2024 og síðan vistaðir í fangahúsi. Ákærði, Egidijus, hafi fyrst verið vistaður í fangaklefa nr. […] á lögreglustöðinni á Akureyri. Að morgni 12. maí hafi ákærði, Egidijus, sparkað ítrekað í hurðina á fangaklefanum þannig að það brotnaði upp úr viðkomandi tréhurð. Hann hafi þá verið færður í klefa nr. […]. Þar hafi hann rifið niður loftljós og hafi það hangið á vírunum. Síðan hafi hann fiktað í viðkomandi rafmagnsvírum með þeim afleiðingum að rafmagn fór af fangaklefunum í nokkrar mínútur. Seinna hafi hann verið að vistaður í klefa nr. […]. Ákærði, Vygantas, hafi fyrst verið vistaður í fangaklefa nr. […]. Hann hafi verið mjög órólegur og hafi ítrekað sparkað og lamið í hurðina að klefanum. Morguninn eftir hafi hann rifið niður loftljós þannig að það hafi hangið á vírunum og síðar hafi hann rifið ljósið alveg niður. Hann hafi haldið áfram að sparka og lemja í hurðina að klefanum. Seinna hafi hann verið færður í klefa nr. […]. Í lögregluskýrslu eru að finna ljósmyndir af meintum eignaspjöllum og USB-lykill með upptökum úr fangaklefum. Ákærði, Egidijus, gaf skýrslu hjá lögreglu þann 25. júlí 2024. Hann kvaðst ekki hafa unnið neinar skemmir í fangaklefa á umræddum tíma. Hann kvað allar viðkomandi skemmdir vera lögreglunni að kenna. Ákærði, Vygantas, gaf ekki skýrslu hjá lögreglu í þessu máli. Varðandi sjöundu ákæru a) Sports Direct á Akureyri Samkvæmt frumskýrslu lögreglu barst tilkynning frá versluninni Sports Direct á Akureyri þann 11. maí 2024 um meintan þjófnað. Þann dag hafi starfsmaður þekkt aftur tvo einstaklinga, sem hafi verið grunaðir um stuld úr versluninni eftir að hafa skoðað upptökur úr öryggismyndavélum verslunarinnar frá 5. maí. Þann 11. maí hafi starfsmaðurinn haft afskipti af tveimur einstaklingum, sem hún þekkti af fyrrgreindum upptökum og boðið þeim að greiða fyrir það sem þau tóku 5. maí. Maðurinn hafi tekið nokkuð vel í það í fyrstu, en síðan hafi þau hlaupið út úr versluninni og skilið eftir vörur sem þau voru með í höndunum. Starfsmaðurinn náði af karlmanninum bónuspoka sem hann hélt á. Sá poki var með innri poka, sem hafi verið gerður til að koma í veg fyrir að þjófavarnarkerfi færi í gang. Að kvöldi 11. maí hafi ákærðu, Egidijus og Vygantas, verið handteknir á Akureyri vegna gruns um þjófnað úr versluninni Sports Direct og fleiri verslunum. Ákærða, Judita, hafi verið handtekin daginn eftir. Í málinu liggi fyrir ljósmyndamappa af skjáskotum úr öryggismyndavélum verslunarinnar. Við handtöku ákærðu þann 11. og 12. maí 2024 og í kjölfar rannsóknaraðgerða hafi verið haldlagðir munir, eins og nánar greinir frá í umfjöllun um fyrstu ákæru. Samkvæmt munaskýrslum lögreglu hafi verið haldlagðir um það bil 290 munir með númeri í tengslum við þessa rannsókn. Í meirihluta hafi verið um að ræða vörur í umbúðum og með verðmerkingum. Vitnið, A, starfsmaður Sports Direct gaf skýrslu hjá lögreglu þann 15. maí 2024. Hún kvað grun hafa vaknað um þjófnað úr versluninni þann 5. maí 2024 og hafi upptökur úr öryggismyndavélum verið skoðaðar í kjölfarið. Þar hafi mátt sjá par, karl og konu, með bónuspoka, sem hafi verið að velja vörur, s.s. veski, bakpoka, föt o.fl. Ekki hafi beinlínis verið hægt að staðreyna með upptökunum að vörur hafi verið settar í pokann. Sama dag og á sama tíma hafi sést á upptökum til manns með bakpoka sem hafi vakið grun hjá þeim. Hann hafi gengið mikið út í horn þar sem öryggismyndavélar hafi ekki náð að mynda. Vitnið kvaðst hafa þann 11. maí 2024 þekkt aftur til parsins, sem hafi komið í versluninna þann 5. maí. Hún hafi gefið sig á tal við þau og hafi spurt hvort þau ætluðu ekki að greiða fyrir það sem þau tóku 5. maí. Fyrst hafi þau neitað, en síðan hafi karlmaður sagst ætla að greiða. Vitnið hafi spurt þau um bónuspokann sem þau voru með, en þau hafi ekki viljað sýna henni hann. Hún hafi gripið í pokann og hafi haldið að í honum væri vörur. Karlmaðurinn hafi síðan sleppt pokanum og í framhaldinu hafi þau bæði hlaupið út úr versluninni og ekið burtu. Í pokanum hafi engar vörur verið, en inn í honum hafi verið álpoki. Eftir þetta hafi komið í ljós í einu horni verslunarinnar töluvert af fötum, sem hafi verið búið var að fjarlægja viðkomandi þjófavarnir. Parið hafi stuttu áður mátað þessi föt í versluninni, þar sem öryggismyndavélar hafi ekki náð að mynda. Í skýrslu hjá lögreglu þann 13. maí 2024, kvaðst ákærði, Egidijus, hafa komið í verslunina Sports Direct þann 5. maí 2024 og tekið föt með sér út úr versluninni án þess að borga. Hann hafi ekki fundið neinn til að borga á kassa og því farið út með vörurnar. Hann kvaðst ekki með vissu geta tilgreint hvað vörur hann tók í umrætt sinn. Honum hafi verið sýndar upptökur úr öryggismyndavélum þennan dag. Hann kvaðst ekki með vissu geta þekkt viðkomandi einstaklinga á myndunum. Líktust að sumu leyti honum sjálfum, bróður hans, ákærða Vygantas og ákærðu, Judita. Honum hafi einnig verið sýndar upptökur úr öryggismyndavélum frá 11. maí 2024. Hann kvaðst ekki geta þekkt viðkomandi aðila á myndunum. Hann kannaðast við að hafa rætt við verslunarstjóra í Sports Direct þennan dag og kannaðist við að hafa fallist á að greiða fyrir vörur sem hann og ákærða, Judita, hafi tekið 5. maí. Verslunarstjórinn hafi síðan reynt að taka af honum poka og klórað hann við það. Þá hafi hann farið út og ef til vill skilið pokann eftir. Ákærði kvaðst aðspurður vera tilbúinn að greiða versluninni skaðabætur. Hann féllst ekki á að kvittun frá Sports Direct í rannsóknargögnum gæfi rétta mynd af réttu endurgjaldi fyrir viðkomandi vörur að fjárhæð kr. 125.430. Í skýrslu hjá lögreglu þann 17. maí 2024 af ákærða, Egidijus, var borin undir hann ljósmynd sem tekin var af upptökum úr öryggismyndavél í Sports Direct frá 5. maí 2024. Myndin sýni þrjá aðila í anddyri verslunarinnar. Ákærði þekkti sig á myndinni og benti á einstakling sem var í miðjunni af þremur á myndinni. Hann kvaðst ekki hafa við neinu að bæta við fyrri framburð sinn um að hann hafi gengið út úr versluninni með fatnað án þess að greiða, þar sem enginn hafi verið við afgreiðsluborðið. Í þessari skýrslutöku voru bornar undir ákærða myndir af haldlögðum munum. Hann gaf skýringar að hluta á viðkomandi munum. Í skýrslu hjá lögreglu þann 12. maí 2024, kvaðst ákærða, Judita, þekkja sig og ákærðu Egidijus og Vygantas á ljósmyndum nr. 7 - 10 úr öryggismyndavélum Sports Direct þann 5. maí 2025. Hún kvað ákærðu, Egidijus og Vygantas, hafa stolið karlmannafötum úr versluninni og að hún hafi ekki tekið neitt. Borinn var undir ákærðu listi um ætlaða stolna muni. Ákærða kvaðst halda að listinn stemmdi við það sem tekið hefði verið nema að Lacoste húfu væri ofaukið. Ákærða þekkti sig og ákærða, Egidijus, á ljósmyndmyndum frá 11. maí 2024 úr öryggismyndavélum Sports Direct. Ákærða kvaðst hafa farið í versluninna til að kaupa föt á son sinn. Eftir að starfsmaður hafi ásakað þau um stuld þann 5. s.m. hafi þau yfirgefið verslunina án þess að taka neitt með sér. Ákærða neitaði aðspurð að þjófavarnarkerfi hafi farið af stað þeirra vegna. Það hafi fleiri verið á ferðinni á sama tíma. Ákærða var spurð út í sérútbúinn fóðraðan bónuspoka, sem hafi verið haldlagður. Hún kvað ákærða, Egidijus eiga þennan búnað, þar á meðal tvær vírklippur, sem voru í pokanum. Hún kvaðst ekki vita til hvers þessi búnaður væri notaður. Í skýrslu hjá lögreglu þann 13. maí 2024, kvaðst ákærði, Vygantas, hafa farið í verslunina Sports Direct þann 5. maí 2024 og hafi stolið þar eitthvað af fötum, sem voru án þjófavarnar og hafi slitið miðana af. Hann hafi ekki notað verkfæri. Hann hafi sett fötin í bakpoka og farið út. Hann kvaðst ekki hafa verið með bróður sínum. Þeir hafi ekki komið saman. Fyrir ákærða voru lagðar ljósmyndir úr öryggismyndavélum Sports Direct. Hann hvað stelpuna vera mjög líka ákærðu, Judita og hugsanlega væri hann á myndunum. Listi yfir muni sem teknir voru úr versluninni var borinn undir ákærða. Hann kvaðst ekki vera viss um hverju hann hafi stolið, en benti helst á myndir 8 og 9 í rannsóknargögnum. Aðspurður kvaðst hann kannast við haldlagðan bónuspoka, en væri ekki viss um innihaldið, en hann hafi notað innri pokann í Elko. Í skýrslu hjá lögreglu þann 17. maí 2024, kvaðst ákærði, Vygantas, þekkja ákærða, Egidijus og ákærðu, Judita, á ljósmyndum úr öryggismyndavélum Sports Direct þann 5. maí 2025. Ákærða hafi verið kynnt myndbönd úr öryggismyndavélum Elko á Akureyri, þann 2. maí og 11. maí 2024. Ákærði hafi þekkt sig og ákærða, Egidijus á myndböndunum í bæði skiptin. Ákærði viðurkenndi að hafa stolið 2. maí og 11. maí 2024 einum síma og einni spjaldtölvu úr Elko í félagi við ákærða, Egidijus. Hins vegar hafi hann neitað að hafa stolið öðrum samskonar síma, sem einnig hafði verið haldlagður, en var ekki í umbúðunum. Ákærði hafi ekki verið viss hvort hann hafi stolið einni eða tveimur spjaldtölvum í umrætt sinn. Í skýrslutöku hjá lögreglu þann 17. maí 2024 voru bornar undir ákærðu, Judita, ljósmyndir af haldlögðum munum. Hún gaf skýringar á hluta þeirra, en öðrum ekki.
b) Elko á Akureyri Samkvæmt frumskýrslu lögreglu barst kæra frá versluninni Elko á Akureyri í kjölfar rannsóknar á þjófnaði úr versluninni Sports Direct, sem hófst þann 11. maí 2024 samanber umfjöllun hér að fram. Kærur frá Elko lutu að því að stolið hafi verið raftækjum úr versluninni dagana 2. og 11. maí 2024. Til grundvallar þessum tveimur kærum voru upptökur úr eftirlitsmyndavélakerfi verslunarinnar. Grunur hafi vaknað um að ákærðu, Egidijus og Vygantas, hafi í fyrra skiptið tekið tvo síma að fjárhæð kr. 619.988 án þess að greiða fyrir þá. Í síðara skiptið hafi ákærðu, Egidijus og Vygantas, verið grunaðir um að taka tvær spjaldtölvur samtals að fjárhæð kr. 189.990 án þess að greiða fyrir þessar vörur. Í málinu liggi fyrir mappa með ljósmyndum sem teknar hafa verið úr upptökum öryggismyndavéla í Elko á Akureyri dagana 2. og 11. maí 2024. Viðkomandi upptökur liggja fyrir í málinu. Í málinu liggur fyrir munaskýrsla sem tekur meðal annars til þeirra hluta sem haldlagðir voru við leit að […], Akureyri og bifreiðarinnar […] þann 12. maí 2024. Í skýrslunni fundust tveir samskonar símar og tvær spjaldtölvur eins og getið er um í ákærunni. Annar síminn var ennþá í umbúðum. Í lögregluskýrslu af ákærða, Egidijus, þann 17. maí 2024 voru honum sýnd viðkomandi myndbönd úr öryggismyndavélum og sýndar myndir af viðkomandi munum sem fundust við húsleit eftir handtöku ákærðu. Ákærði, Egidijus, kvaðst ekki þekkja sig á myndböndunum og viðurkenndi ekki að hafa stolið viðkomandi munum. Í skýrslu hjá lögreglu þann 17. maí 2024, var ákærða, Vygantas, kynnt myndbönd úr öryggismyndavélum Elko á Akureyri, þann 2. maí og 11. maí 2024. Um afstöðu hans til sakarefnisins er vísað til umfjöllunar hér að framan.
c) Peningaþvætti. Við rannsókn málsins aflaði lögreglan bankagagna varðandi ákærðu, Judita. Um hafi verið að ræða yfirlit varðandi tímabilið 15. desember 2023 til 15. maí 2024 um þrjá reikninga hjá Landsbankanum og einn reikning hjá Íslandsbanka. Einn reikningur hjá Landsbankanum var greindur sérstaklega í þágu rannsóknar málsins. Á ofangreindu rannsóknartímabili hafi það verið mat lögreglunnar að óútskýrðar tekjur ákærðu, Judita, séu samtals kr. 4.064.700. Lögreglan aflaði einnig skattframtala ákærðu, Judita og Egidijus, fyrir árið 2024.
V.
Skýrslur fyrir dómi Ákærðu, Egidijus og Judita, kusu bæði að gefa ekki skýrslur fyrir dómi. Eins og áður greinir sótti ákærði, Vygantas, ekki þing við meðferð málsins. Vitnið, lögreglumaður nr. B, staðfesti viðkomandi skýrslur og gerði grein fyrir aðkomu sinni að rannsókn málsins. Í skýrslu hennar kom meðal annars fram að hún hafi tekið þátt í rannsókn málsins frá því að kæra um þjófnað hafi borist þann 11. maí 2024 frá versluninni Sports Direct, Akureyri. Í framhaldinu hafi leit hafist af gerendum á grundvelli lýsinga starfsmanna og myndbanda úr öryggismyndavélum. Ákærðu hafi verið handtekin fljótlega. Síðan hafi verið gerðar þrjár húsleitir auk leitar í bifreið. Munaskýrslur hafi verið gerðar og þær bornar undir ákærðu, án þess að þeim hafi tekist að varpa ljósi á eignarhald sitt. Varðar fyrstu ákæru. Vegna kæru frá Sport Direct hafi lögreglan skoðað myndbönd af þeirri atburðarás. Seinna um daginn hafi lögreglumaður, sem tók þátt í rannsókninni, þekkt ákærðu, Egidijus og Vygantas inn í Krónunni af myndbandinu og það hafi leitt til handtöku þeirra. Síðan hafi myndbönd verið skoðuð fyrir viðkomandi tímabil. Sömu aðferð hafi verið beitt hvort sem ákærði, Egidijus var einn að verki, eða með ákærðu, Judita eða ákærða, Vygantas, farið hafi verið með vörur á sjálfsafgreiðslukassa, greitt hafi verið fyrir einn ódýran hlut með debetkorti, sem var skráð á ákærðu, Judita, og síðan farið með það sem eftir er út úr versluninni án þess að greiða. Aðspurð kveður vitnið að ákærðu hafi ekki greitt með seðlum, þar sem þau hafi eingöngu farið í gegnum sjálfsafgreiðslukassa. Varðandi aðra ákæru. Við rannsókn annarra mála gagnvart ákærðu hafi verið haft samband við Hagkaup, vegna færslna á debetkorti og við skoðun á haldlögðum munum. Við skoðun á myndböndum frá versluninni hafi komið í ljós samskonar aðferðir hjá ákærðu og við þjófnað úr öðrum verslunum. Í fjögur skipti hafi ákærðu Egidijus og Judita, farið saman, tínt saman vörur í körfu, þær hafi síðan verið faldar, t.d. í bakpoka og þau síðan farið út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær, en stundum hafi verið greitt fyrir eina vöru af nokkrum. Varðandi þriðju ákæru. Vitnið kvað að kæra hafi komið frá Lyf og heilsu og henni hafi fylgt myndband úr öryggismyndavél frá 11. maí 2024. Hún hafi þekkt ákærðu, Egidijus og Judita, á myndbandinu vegna kynna af þeim í fyrri málum, sem tengdist einkum Sports Direct og Elko. Hún hafi kannast við samskonar bónuspoka sem ákærði, Egidijus, hafi verið með og einnig fatnað þeirra beggja. Hún kveðst einnig hafa þekkt húðflúr á konunni af myndbandinu sem hafi stemmt við húðflúr á handlegg ákærðu, Judita. Varðandi fjórðu ákæru. Vitnið kvaðst hafa við rannsókn á öðru máli komist að því að ákærði Egidijus, væri sviptur ökurétti. Við skoðun á eftirlitsmyndavélum á Leiruvegi á Akureyri hafi lögreglan tekið skjáskot þar sem fram hafi komið bifreiðin […], þar sem hún hafi þekkt ákærða, sem ökumann bifreiðarinnar. Varðandi sjöttu ákæru. Vitnið kvað, ákærðu, Egidijus og Vygantas, hafa verið mjög ósamvinnuþýða við handtöku að kvöldi 11. maí 2024. Þeir hafi neitað að gefa upp nöfn sín og verið mjög órólegir þegar í fangaklefa var komið. Þeir hafi verið vistaðir hvor í sínum klefa og hafi báðir verið færðir á milli klefa eftir að hafa valdið skemmdum á þeim. Varðandi sjöundu ákæru. Vitnið kvað kæru hafa borist þann 11. maí 2024 til lögreglu um þjófnað í versluninni Sports Direct, Akureyri. Tveir einstaklingar hafi fyrr um daginn þekkst í versluninni af myndböndum úr öryggismyndavélum frá 5. maí 2024. Yfirmaður verslunarinnar hafi átt tal við viðkomandi einstaklinga sem voru ákærðu Egidijus og Judita. Yfirmaðurinn hafi náð af þeim innkaupapoka, sem gerður hafði verið til verjast þjófavarnarkerfum. Að því búnu hafi ákærðu yfirgefið verslunina á hlaupum. Lögreglan hafi síðan skoðað viðkomandi upptökur úr öryggismyndavélum verslunarinnar þann 5. maí og 11. maí 2024. Það hafi síðan leitt til handtöku, ákærðu Egidijus og Vygantas, eins og áður greinir og ákærða Judita, hafi verið handtekin daginn eftir. Við rannsókn fyrrgreindra mála hafi komið fram hjá ákærða, Vygantas, að hann hafi notað sérútbúin innkaupapoka í Elko, Akureyri og auk þess hafi fundist vörur úr þeirri verslun í umbúðum við húsleit hjá ákærðu. Eftir fyrirspurn lögreglu til Elko hafi komið fram kæra frá versluninni ásamt upptökum úr öryggismyndavélum. Af viðkomandi myndböndum hafi vitnið þekkt ákærðu, Egidijus og Vygantas, taka muni úr versluninni í tvígang, þann 2. maí og 11. maí 2024, án þess að greiða fyrir þá. Vitnið, lögreglumaður nr. D staðfesti skýrslur og gerði grein fyrir aðkomu sinni að rannsókn málsins. Hún hafi ekki tekið þátt í rannsókninni frá upphafi, en hafi komið að skýrslum af ákærðu á síðari stigum. Hún hafi einnig komið að öflun gagna, haldið utan um upptökur úr verslunum og haft umsjón með fjármálagreiningu málsins. Hún kveðst hafa aflað bankagagna og fleiri gagna og hafi niðurstaða hennar verið sú að óútskýrðar tekjur ákærðu, Judita, væru 4.046.700 krónur, að teknu tilliti til frádráttarliða. Einnig hafi hún unnið yfirlit um debetkortanotkun ákærðu í verslunum. Aðspurð kvað vitnið að lögreglan hafi lagt hald á innstæðu á bankareikningi að fjárhæð kr. 123.000 með vísun til framangreindra óútskýrðra tekna óháð þeim færslum sem finna megi á viðkomandi reikningi. Vitnið, A kom fyrir dóminn. Hún kvaðst hafa verið yfirmaður í versluninni Sports Direct, á Akureyri. Þann 5. maí 2024 hafi vantað vörur í verslunina og það hafi virst eins og þeim hafi verið stolið. Einnig hafi fundist þjófavarnarútbúnaður af fatnaði þennan dag. Þegar upptökur úr öryggismyndavél hafi verið skoðaðar hafi vitnið tekið eftir þremur einstaklingum í versluninni. Einn af þeim hafi verið með stóran bónuspoka og annar með bakpoka. Þau hafi tekið með vörur sér án þess að greiða fyrir þær við kassa. Ekki hafi verið hægt að sjá allar vörur af myndbandi sem viðkomandi tóku í umrætt sinn, en samtals hafi það verið nálægt 100.000 krónum. Um það bil viku seinna hafi tveir einstaklingar, karl og kona, komið í verslunina með samskonar bónuspoka og hafi vitnið þekkt þau aftur af myndbandinu. Þegar vitnið hafi séð til þeirra hafi þau verið að skoða frekar dýrar vörur. Vitnið gaf sig á tal við þau og spurði hvort þau ætluðu ekki að greiða það sem þau tóku áður án þess að greiða. Karlmaðurinn hafi tekið líklega í það, en svo virtist sem konan hafi talið hann af því. Vitnið náði pokanum af karlmanninum, en þegar að var gáð voru engar vörur úr versluninni í honum. Síðan hafi parið hlaupið út og út í bifreið og ekið í burtu. Pokinn hafi verið fóðraður með þykkum álpappír. Í honum voru skæri eða klippur væntanlega til að ná öryggistækjum af vörum. Aðspurt kvaðst vitnið hafa prófað virkni pokans. Þjófavarnarkerfið hafi ekki farið í gang þegar pokinn með álfóðri og með vörum úr versluninni var rennt í gegnum öryggishlið. Vitnið kvað parið hafa haldið á vörum þegar afskipti voru höfð af þeim í versluninni, en hafi þá losað sig við þær. Vitnið kvaðst hafa fundið töluvert af fötum á stað þar sem öryggismyndavélar hafi ekki náð til. Búið hafi verið að taka þjófavörn af þeim sumum.
VI.
Niðurstöður Fyrsta, fimmta, sjötta og sjöunda ákæra gegn ákærða, Vygantas Ákærði, Vygantas, sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en ákæra og fyrirkall hefur verið birt með lögmætum hætti, sbr. 3. mgr. 156. gr. laga nr. 88/2008. Málið verður dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var fyrirvari þess efnis í fyrirkallinu. Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sem tilgreind er ákæru nr. 1, 2. og 4.-lið, ákæru nr. 5, ákæru nr. 6, 2.-lið og ákæru nr. 7, 1.-, 3.- og 4.-lið hans sönnuð og er háttsemi hans öllum tilvikum rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærum. Fyrsta ákæra Ákærðu, Egidijus og Judita, neita bæði sök í öllum ákæruliðum. Í 1. ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Judita, sökuð um að hafa 2. maí 2024 staðið saman að því að stela matvælum og fleiri vörum úr versluninni Krónunni á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum úr versluninni, dagsettar 2. maí 2024 á tímabilinu kl. 10:52:28 til 10:53:25. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærðu fóru saman inn á sjálfsafgreiðslusvæði verslunarinnar með vörur í körfu, án þess hægt sé staðreyna tegund þeirra og fjölda. Af upptökunum sést ekki hvort eða hvernig þau afgreiddu sig á kassanum. Í málinu liggur fyrir yfirlit af debetkorti ákærðu, Judita, þar sem eru að finna tvær færslur sem tengjast versluninni þennan dag kl. 10:53:01 að fjárhæð kr. 299 og kl. 20:13:02 að fjárhæð kr. 370. Ekki liggja fyrir önnur sönnunargögn í málinu sem varpa ljósi á að ákærðu hafi tekið vörur í versluninni þennan dag án þess að greiða fyrir þær. Með vísan til 108. gr. og 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verða ákærðu því sýknuð af þessum ákærulið. Í 2.-ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Vygantas, sakaðir um að hafa 5. maí 2024 staðið saman að því að stela matvælum og fleiri vörum úr versluninni Krónunni á Akureyri. Um þátt ákærða, Vygantas vísast til umfjöllunar hér að framan, þar sem hann er sakfelldur samkvæmt þessum ákærulið. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 5. maí 2024 á tímabilinu kl. 12:05:13 til 12:30:00. Andlit og útlit ákærða, Egidijus á framangreindum upptökum samrýmist öðru myndefni af honum, sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit hans, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði fór inn á sjálfsafgreiðslusvæði verslunarinnar með vörur í körfu, án þess hægt sé staðreyna tegund þeirra og fjölda. Í myndefninu sést ekki hvort eða hvernig ákærði afgreiddu sig á kassanum. Í málinu liggur fyrir yfirlit af debetkorti ákærðu, Judita, þar sem eru að finna tvær færslur sem tengjast versluninni þennan dag kl. 12:25:42 að fjárhæð 196 krónur og 17:24:50 að fjárhæð 113 krónur. Ekki liggja fyrir önnur sönnunargögn í málinu sem varpa ljósi á að ákærði hafi tekið vörur í versluninni þennan dag án þess að greiða fyrir þær. Með vísan til 108. gr. og 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verða ákærði, Egidijus því sýknaður af þessum ákærulið. Í 3.-ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Judita, sökuð um að hafa 6. maí 2024 staðið saman að því að stela matvælum og fleiri vörum úr versluninni Krónunni á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 6. maí 2024 á tímabilinu kl. 11:25:15 til 11:30:35. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærðu fóru saman inn á sjálfsafgreiðslusvæði verslunarinnar með vörur í körfu, án þess hægt sé staðreyna nákvæmlega tegund þeirra og fjölda. Af upptökunum sést þegar þau afgreiddu sig á kassanum. Þau skanna eina flösku og greiða fyrir hana með greiðslukorti. Að því búnu færa þau vörur úr körfu yfir í poka, án þess að greiða fyrir þær vörur. Síðan fara út úr versluninni. Í málinu liggur fyrir yfirlit af debetkorti ákærðu, Judita, þar sem eru að finna tvær færslur sem tengjast versluninni þennan dag kl. 11:29:53 að fjárhæð krónur 129, Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærðu hafi framið þann verknað sem þeim er gefinn að sök. Brotið er rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru. Í 4.-ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Vygantas, sakaðir um að hafa 6. maí 2024 staðið saman að því að stela matvælum og fleiri vörum úr versluninni Krónunni á Akureyri. Um þátt ákærða, Vygantas, vísast til umfjöllunar hér að framan, þar sem hann er sakfelldur samkvæmt þessum ákærulið. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum úr versluninni, dagsettar 6. maí 2024 á tímabilinu kl. 20:03:20 til 20:21:00. Andlit og útlit ákærða, Egidijus á framangreindum upptökum samrýmist öðru myndefni af honum, sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit hans, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærðu settu margar vörur í tvo innkaupapoka sem voru í hjólakörfu. Þeir fóru saman inn á sjálfsafgreiðslusvæði verslunarinnar, án þess hægt sé staðreyna nákvæmlega tegund þeirra og fjölda. Af upptökunum sést að ákærði, Egidijus skannaði eina vöru og greiddi fyrir hana með greiðslukorti. Að því búnu setti hann þá vöru í poka sem var í körfunni. Síðan fóru ákærðu út af afgreiðslusvæðinu. án þess að greiða fyrir þær vörur sem ekki voru skannaðar í körfunni og fara saman út úr versluninni. Í málinu liggur fyrir yfirlit af debetkorti ákærðu, Judita, þar sem eru að finna þrjár færslur sem tengjast versluninni þennan dag kl. 20:20:24 að fjárhæð 219. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærði, Egidijus, hafi framið þann verknað sem honum er gefinn að sök. Brotið er rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru. Í 5.-ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Judita, sökuð um að hafa 9. maí 2024 staðið saman að því að stela snyrtivörum úr versluninni Krónunni á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum úr versluninni, dagsettar 9. maí 2024 á tímabilinu kl. 19:36:40 til 19:39:40. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sjást þau skoða vörur og taka með sér. Af upptökunum sjást þau ekki greiða á kassa og yfirgefa verslunina. Athuga betur. Í málinu liggur fyrir yfirlit af debetkorti ákærðu, Judita, þar sem eru að finna eina færslu, sem tengist versluninni þennan dag kl. 19:42:57 að fjárhæð kr. 598. Ekki liggja fyrir önnur sönnunargögn í málinu sem varpa ljósi á að ákærðu hafi tekið vörur í versluninni þennan dag án þess að greiða fyrir þær. Af gögnum málsins verður dregin sú ályktun að skynsamlegur vafi sé hvort ákærðu hafi framið það brot sem í ákæru greinir, þar sem ekki sé ekki útilokað að ákærðu hafi greitt fyrir viðkomandi vörur. Með vísan til 108. gr. og 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verða ákærðu því sýknuð af þessum ákærulið. Í 6.-ákærulið er ákærði, Egidijus, sakaður um að hafa 10. maí 2024 stolið matvælum úr versluninni Krónunni á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 10. maí 2024 á tímabilinu kl. 17:50:48 til kl. 17:56:30. Andlit og útlit ákærða á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af honum sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit hans, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði tekur vörur í körfu á nokkrum stöðum í versluninni. Af upptökunum sést hann ekki fara á kassa né yfirgefa verslunina. Í málinu liggur fyrir yfirlit af debetkorti ákærðu, Judita, þar sem eru að finna eina færslu, sem tengist versluninni þennan dag kl. 17:57:42 að fjárhæð kr. 112. Ekki liggja fyrir önnur sönnunargögn í málinu sem varpa ljósi á að ákærðu hafi tekið vörur í versluninni þennan dag án þess að greiða fyrir þær. Með vísan til 108. gr. og 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði því sýknaður af þessum ákærulið. Önnur ákæra Ákærðu, Egidijus og Judita, neita bæði sök í öllum ákæruliðum. Í 1. ákærulið eru bæði ákærðu sökuð um að hafa í sameiningu 1. maí 2024 stolið snyrtivörum úr versluninni Hagkaup á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 1. maí 2024 á tímabilinu kl. 18:31:25 til 18:40:35. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði, Egidijus var með bakpoka við komu í verslunina. Ákærðu tóku nokkrar vörur úr hillum verslunarinnar og létu þær í körfu. Ákærði, Egidijus, fór síðan inn í mátunarklefa í versluninni með körfu af vörum, en kom þaðan út með tóma körfu. Að því loknu fór þau bæði að goskæli og síðan á kassa. Þau framvísuðu fjórum drykkjarvörum, sem ákærði, Egidijus, greiddi fyrir með greiðslukorti, án þess að framvísa vörum sem voru í bakpoka hans. Síðan fóru þau saman út úr versluninni. Í málinu liggur fyrir yfirlit af kreditkorti ákærðu, Judita, þar sem er að finna eina færslu, sem tengjast versluninni þennan dag kl. 18:40:12 að fjárhæð 2.695 krónur. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærðu hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákæru. Í 2. ákærulið eru ákærðu sökuð um að hafa í sameiningu 2. maí 2024 stolið nærfötum og snyrtivörum úr versluninni Hagkaup á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 2. maí 2024 á tímabilinu kl. 23:28:30 til 23:44:10. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði, Egidijus var með bakpoka við komu í verslunina. Ákærðu tóku vörur úr hillum verslunarinnar og létu þær í körfu. Ákærðu tóku í sameiningu umbúðir af vörunnum og settu þær síðan í bakpoka, ákærða, Egidijus. Ákærða, Judita, hélt á tómri körfu að því loknu. Síðan fóru þau á kassa og fengu í hendur nokkrar vörur sem afgreiðslumaður afhenti þeim. Ákærði, Egidijus, greiddi fyrir þær með greiðslukorti, án þess að framvísa vörum, sem voru í bakpoka hans. Síðan fóru þau saman út úr versluninni. Í málinu liggur fyrir yfirlit af kreditkorti ákærðu, Judita, þar sem er að finna eina færslu, sem tengjast versluninni þennan dag kl. 23:41:46 að fjárhæð krónur 3.398. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærðu hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákæru. Í 3. ákærulið eru ákærðu sökuð um að hafa í sameiningu 4. maí 2024 stolið snyrtivörum úr versluninni Hagkaup á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 2. maí 2024 á tímabilinu kl. 18:09:35 til 18:23:40. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði, Egidijus var með bónuspoka, sem hann setti í körfu við komu í verslunina. Ákærðu tóku vörur úr hillum verslunarinnar og létu í körfuna. Síðar kom ákærði, Egidijus, vörunum fyrir í fyrrgreindum poka í kerrunni. Að því loknu fór þau bæði að goskæli og síðan á kassa. Ákærði, Egidijus, greiddi fyrir nokkrar vörur með greiðslukorti, án þess að framvísa vörum sem voru í bónuspoka í kerrunni. Síðan fóru þau saman út úr versluninni. Í málinu liggur fyrir yfirlit af kreditkorti ákærðu, Judita, þar sem er að finna eina færslu, sem tengjast versluninni þennan dag kl. 18:23:11 að fjárhæð krónur 2.705. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærðu hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákæru. Í 4. ákærulið er ákærði, Egidijus, sakaður um að hafa 5. maí 2024 stolið snyrtivörum úr versluninni Hagkaup á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 5. maí 2024 á tímabilinu kl. 19:36:35 til 19:41:50. Andlit og útlit ákærða á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af honum, sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit hans, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði er í úlpu þegar hann kemur inn í verslunina. Ákærði tók tvær vörutegundir úr hillum og lét þær inn á sig, eftir að hann hafði fjarlægt plast utan af vörunum, sem voru með þjófamerki. Síðar fór ákærði á kassa og greiddi fyrir einn sígarettupakka með greiðslukorti, án þess að framvísa vörum sem hann var með innan klæða. Að því búnu fór hann út úr versluninni. Í málinu liggur fyrir yfirlit af kreditkorti ákærðu, Judita, þar sem er að finna færslu, sem tengjast versluninni þennan dag kl. 19.41:43 að fjárhæð krónur 1.699. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærði hafi framið þann verknað sem honum er gefin að sök. Brot ákærða er rétt heimfært til refsiákvæðis í ákæru. Í 5. ákærulið er ákærði, Egidijus, sakaður um að hafa 7. maí 2024 stolið snyrtivörum úr versluninni Hagkaup á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 7. maí 2024 á tímabilinu kl. 19:48:30 til 19:56:25. Andlit og útlit ákærða á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af honum, sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit hans, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði er í úlpu þegar hann kemur inn í verslunina. Ákærði tók fjórar vörutegundir úr hillum og lét þær inn á sig, eftir að hann hafði fjarlægt plast utan af vörunum, sem var með þjófamerki. Að því búnu fór hann út úr versluninni, án þess að koma við á kassa og framvísa vörum sem hann var með innan klæða. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærði hafi framið þann verknað sem honum er gefin að sök. Brot ákærða er rétt heimfært til refsiákvæðis í ákæru. Í 6. ákærulið eru ákærðu sökuð um að hafa í sameiningu 9. maí 2024 stolið snyrtivörum úr versluninni Hagkaup á Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 9. maí 2024 á tímabilinu kl. 22:43:26 til 22:54:40. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði, Egidijus, er í útivistarjakka þegar hann kemur inn í verslunina. Ákærðu tóku í samráði tvær vörutegundir úr hillum. Ákærði, Egidijus, lét þær inn á sig, eftir að hafa fjarlægt plast utan af vörunum, sem voru með þjófamerki. Síðar fóru ákærðu á kassa og ákærði, Egidijus, greiddi fyrir tvo sígarettupakka með greiðslukorti, án þess að framvísa vörum sem hann var með innan klæða. Að því búnu fór hann út úr versluninni. Í málinu liggur fyrir yfirlit af kreditkorti ákærðu, Judita, þar sem er að finna færslu, sem tengjast versluninni þennan dag kl. 22:54:24 að fjárhæð krónur 3.398. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærðu hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákæru. Þriðja ákæra Ákærðu Egidijus og Judita, neita bæði sök samkvæmt ákærunni. Ákærðu sökuð um að hafa í samstarfi og sameiningu þann 11. maí 2024 stolið snyrtivörum úr versluninni Lyf og heilsu í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi, Akureyri. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 11. maí 2024 á tímabilinu kl. 13:54:08 til 13:58:20. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði, Egidijus, var með bónuspoka við komu í verslunina. Ákærðu höfðu samráð við að taka vörur úr hillum verslunarinnar og létu þær í körfu. Síðan var þeim komið í fyrrgreindan bónuspoka. Að því loknu fóru ákærðu saman út úr versluninni, án þess að framvísa vörunum til greiðslu. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærðu hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákæru. Fjórða ákæra Sækjandi málsins lét bóka leiðréttingu við ákæruna við aðalmeðferð málsins þar sem dagsetning hins meinta brots er tilgreind föstudaginn 10. maí 2024. Ákærði, Egidijus, neitar sök samkvæmt ákærunni kaus að tjá sig ekkert um sakarefnið fyrir dómi, eins og áður greinir. Samkvæmt ákærunni er ákærði sakaður um að hafa föstudaginn 10. maí 2024 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti vestur um þjóðveg nr. 1 við Leiru á Akureyri. Við rannsókn annars máls sem hefur verið sameinað þessu máli viðurkenndi ákærði akstur á bifreiðinni frá Reykjavík til Akureyrar þann 30. apríl 2024 og einnig á meðan dvöl hans stóð á Akureyri í byrjun maí s.á. Samkvæmt gögnum málsins var ákærði handtekin á Akureyri að kvöldi 11. maí 2024. Fyrir liggur skjáskot úr eftirlitsmyndavélum á Akureyri af hringvegi við Leiru, þjóðvegi nr. 1, þann 10. maí 2024 kl. 11:48. Andlit og útlit ákærða í framangreindu skjáskoti samrýmist öðru myndefni af honum, sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit hans, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af rannsóknargögnum er ljóst að bifreiðin […] var á leið austur eftir tilgreindum vegi viðkomandi dag, en ekki á leið vestur eins og greinir í ákæru. Þrátt fyrir þetta er lýsing hinnar ólögmætu háttsemi, sem ákærða er gefin að sök, nægjanlega skýr í ákæru, enda telur dómurinn að vörn ákærða hafi ekki verið áfátt þess vegna, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærði hafi framið þann verknað sem honum er gefin að sök. Brot ákærða er rétt heimfært til refsiákvæðis í ákæru. Sjötta ákæra Samkvæmt ákærunni eru ákærðu, Egidijus og Vygantas sakaðir um að hafa þann 12. maí 2024 valdið skemmdum í fangaklefa á lögreglustöðinni við Þórunnarstræti, Akureyri. Um þátt ákærða, Vygantas vísast til umfjöllunar hér að framan, þar sem hann er sakfelldur samkvæmt þessum ákærulið. Ákærði, Egidijus, neitar sök samkvæmt ákærunni. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var hann handtekinn á Akureyri að kvöldi laugardagsins 11. maí 2024. Hann var upphaflega vistaður í klefa […]. Morguninn eftir hafi hann sparkað ítrekað í timburhurð að klefanum, þannig að brotnað hafi úr henni. Eftir þetta hafi ákærði, Egidijus, verðið færður í annan klefa, sem er nr. […]. Stuttu síðar hafi hann rifið niður loftljós í þeim klefa. Hann hafi síðan fiktað í rafmagnsvírum sem héngu úr loftinu og við það hafi orðið rafmagnslaust í fangaklefunum í nokkrar mínútur. Með rannsóknargagna eru ljósmyndir af skemmdum í klefum nr. […] og […]. Fyrir dómi kvað vitnið, lögreglumaður nr. B, að ákærði hafi verið ósamvinnuþýður við handtöku að kvöldi 11. maí 2024. Hann hafi neitað að gefa upp nafn sitt og verið órólegur þegar í fangaklefa var komið. Hann hafi verið vistaður einn í klefa og verið færður í annan klefa eftir að hafa valdið skemmdum. Ákærði bar fyrir lögreglu að allt sem gerst hafi í viðkomandi fangaklefum væri lögreglunni að kenna. Hann tjáði sig ekki um málavexti fyrir dómi. Framburður ákærða hjá lögreglu um skemmdir í fangaklefunum er mjög óljós og ekkert í málinu sem styður hann. Þegar litið er til allra gagna málsins þykir hafið yfir allan vafa að ákærði, Egidijus, hafi framið þann verknað sem honum er gefinn að sök. Brot ákærða er rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru. Sjöunda ákæra Í 1. ákærulið eru ákærðu, Egidijus, Judita og Vygantas, sökuð um að hafa þann 5. maí 2024 stolið vörum og fatnaði úr versluninni Sports Direct, Austursíðu 2, Akureyri að verðmæti 128.500 krónur. Um þátt ákærða, Vygantas, vísast til umfjöllunar hér að framan, þar sem hann var sakfelldur samkvæmt þessum ákærulið. Ákærðu, Egidijus og Judita, hafa neitað sök samkvæmt þessum ákærulið og kusu að tjá sig ekkert um sakarefnið fyrir dómi, eins og áður greinir. Í málinu liggur fyrir ljósmyndamappa af skjáskotum úr öryggismyndavélum verslunarinnar þann 5. maí 2024. Andlit og útlit ákærðu, Egidijus og Judita, á framangreindum skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Vitnið, A, starfsmaður Sports Direct, kvað grun hafa vaknað um þjófnað úr versluninni þann 5. maí 2024. Hjá lögreglu kvað hún að upptökur úr öryggismyndavélum hafi verið skoðaðar í kjölfarið. Þar hafi mátt sjá par, karl og konu, með bónuspoka, sem hafi verið að skoða vörur, s.s. veski, bakpoka, föt o.fl. Ekki hafi beinlínis verið hægt að staðreyna á upptökunum að vörur hafi verið settar í pokann. Sama dag og á sama tíma hafi sést á upptökum til annars manns með bakpoka sem hafi vakið grun hjá þeim. Hann hafi gengið mikið út í horn þar sem öryggismyndavélar hafi ekki náð að mynda. Þann 11. maí 2024 hafi vitnið þekkt aftur framangreint par, þar sem það var í versluninni. Hún hafi gefið sig á tal við þau og hafi spurt hvort þau ætluðu ekki að greiða fyrir það sem þau tóku 5. maí. Fyrst hafi þau neitað, en síðan hafi karlmaðurinn sagst ætla að greiða. Framangreint vitni kom fyrir dóm og staðfesti skýrslu sem hún gaf fyrir lögreglu. Fyrir dómi kvað hún að ekki hafi verið hægt að sjá nákvæmlega af viðkomandi myndböndum hvaða vörur ákærðu hafi tekið í umrætt sinn, en samtals hafi það verið nálægt 100.000 krónum. Ákærði, Egidijus, játaði í skýrslutöku hjá lögreglu þann 13. maí 2024, að hafa komið í verslunina Sports Direct þann 5. maí 2024 og tekið föt með sér út úr versluninni án þess að borga. Hann hafi ekki fundið neinn til að borga á kassa og því farið út með vörurnar. Hann kvaðst ekki með vissu geta tilgreint hvað vörur hann tók í umrætt sinn. Í skýrslu hjá lögreglu þann 17. maí 2024 kvaðst hann ekki hafa neinu að bæta við fyrri framburð sinn um að hann hafi gengið út úr versluninni með fatnað án þess að greiða, þar sem enginn hafi verið við afgreiðsluborðið. Í skýrslu hjá lögreglu þann 13. maí 2024, viðurkenndi ákærði, Vygantas, að hafa farið í verslunina Sports Direct þann 5. maí 2024 og stolið þar eitthvað af fötum, sem voru án þjófavarnar. Hann hafi sett fötin í bakpoka og farið út. Hann kvaðst ekki hafa verið með bróður sínum ákærða, Egidijus. Þeir hafi ekki komið saman. Hann kvaðst ekki vera vissum um hverju hann hafi stolið. Í skýrslu hjá lögreglu þann 17. maí 2024, kvaðst ákærði, Vygantas, þekkja ákærða, Egidijus og ákærðu, Judita, á ljósmyndum úr öryggismyndavélum Sports Direct þann 5. maí 2025. Í skýrslu hjá lögreglu þann 12. maí 2024, kvaðst ákærða, Judita, þekkja sig og ákærðu Egidijus og Vygantas á skjáskotum úr öryggismyndavélum Sports Direct þann 5. maí 2025. Hún kvað ákærðu, Egidijus og Vygantas, hafa stolið karlmannsfatnaði úr versluninni, en hún hafi ekki tekið neitt. Borinn var undir ákærðu listi um ætlaða stolna muni. Ákærða kvaðst halda að listinn stemmdi við það sem tekið hefði verið nema að Lacoste húfu væri ofaukið. Þegar litið er til allra gagna málsins þykir sannað að ákærðu, Egidijus og Judita, hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök, þó þannig að verðmæti þýfisins telst ekki sannað og eru þau sakfelld fyrir að hafa stolið vörum að ótilgreindu verðmæti. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Í 2. ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Judita, sökuð um að hafa í sameiningu þann 11. maí 2024 gert tilraun til að stela fatnaði og vörum að verðmæti 125.420 úr versluninni Sports Direct, Austursíðu 2, Akureyri, með tilgreindum hætti í ákæru. Ákærðu hafa neitað sök samkvæmt þessum ákærulið og kusu að tjá sig ekkert um sakarefnið fyrir dómi, eins og áður greinir. Í málinu liggur fyrir ljósmyndamappa af skjáskotum úr öryggismyndavélum verslunarinnar þennan dag. Andlit og útlit ákærðu, Egidijus og Judita, á framangreindum skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit þeirra, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Vitnið, A, starfsmaður Sports Direct, kvaðst fyrir dómi hafa þekkt ákærðu þann 11. maí 2024 þegar þau komu í verslunina eftir að hafa skoðað myndbönd úr öryggismyndavélum þann 5. maí 2024 vegna gruns um þjófnað. Eftir að hún hafi gefið sig á tal við þau hafi hún náð bónuspoka af karlmanninum. Þá hafi parið hlaupið út og í bifreið og ekið í burtu. Engar vörur úr versluninni voru þó í pokanum. Hann hafi verið fóðraður með þykkum álpappír. Í honum hafi verið voru skæri eða klippur væntanlega til að ná öryggistækjum af vörum. Aðspurt kvaðst vitnið hafa prófað virkni pokans. Þjófavarnarkerfið hafi ekki farið ekki í gang þegar pokinn með fóðrinu og með vörum úr versluninni var rennt í gegnum öryggishlið. Vitnið kvað parið hafa haldið á vörum þegar hún hafði afskipti af þeim í versluninni, en þau hafi þá losað sig við þær. Vitnið kvaðst hafa fundið töluvert af fötum á stað þar sem öryggismyndavélar hafi ekki náð til. Búið hafi verið að taka þjófavörn af vörunum að hluta. Ákærði, Egidijus, staðfesti í skýrslutöku hjá lögreglu þann 13. maí 2024, að hafa komið í verslunina Sports Direct þann 11. maí 2024 og hafi starfsmaður verslunarinnar tekið af honum innkaupapoka. Hann hafi þá yfirgefið verslunina. Aðspurður um vírklippur sem voru í pokanum kvaðst hann hafa notað þær við að gera við bílinn og einnig við að klippa á sér táneglurnar. Í skýrslu hjá lögreglu þann 12. maí 2024, þekkti ákærða, Judita, sig og ákærða, Egidijus, á skjáskotum úr öryggismyndavélum Sports Direct frá 11. maí 2024. Ákærða kvaðst hafa farið í verslunina til að kaupa föt á son sinn. Eftir að starfsmaður hafi ásakað þau um stuld 5. maí s.m. hafi þau yfirgefið verslunina án þess að taka neitt með sér. Ákærða neitaði aðspurð að þjófavarnarkerfi hafi farið af stað þeirra vegna. Það hafi fleiri verið á ferðinni á sama tíma. Ákærða var spurð út í sérútbúinn fóðraðan bónuspoka, sem hafi verið haldlagður. Hún kvað ákærða, Egidijus eiga þennan búnað, þar á meðal tvær vírakippur, sem voru í pokanum. Hún kvaðst ekki vita til hvers þessi búnaður væri notaður. Þegar litið er til gagna málsins, ekki síst greinargóðs framburðar vitnisins, A, fyrir dómi, þykir sannað að ákærðu, Egidijus og Judita, hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök, þó þannig að verðmæti viðkomandi vara telst ekki sannað og eru þau sakfellt fyrir að hafa gert tilraun til að stela vörum að ótilgreindu verðmæti. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Í 3. ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Vygantas, sakaðir um að hafa í sameiningu þann 2. maí 2024 stolið úr versluninni Elko, Tryggvabraut 18, Akureyri, tveimur símum af gerðinni Samsung Galaxy Fold5, samtals að verðmæti 619.988 krónur. Um þátt ákærða, Vygantas, vísast til umfjöllunar hér að framan, þar sem hann er sakfelldur samkvæmt þessum ákærulið. Ákærði, Egidijus, hefur neitað sök samkvæmt þessum ákærulið og kaus að tjá sig ekkert um sakarefnið fyrir dómi, eins og áður greinir. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 2. maí 2024 á tímabilinu kl. 17:41:10 til 17:45:20. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit ákærða, Egidijus, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði, Vygantas, er í þykkri úlpu við komu í verslunina. Inni í versluninni tekur ákærði, Egidijus, tvo hluti úr hillu, sem samsvara símum. Ákærði, Vygantas, setur þá síðan innan klæða að framanverðu. Að því loknu fóru ákærðu saman út úr versluninni, án þess að framvísa vörunum til greiðslu. Í málinu liggur fyrir munaskýrsla, sem tekur meðal annars til þeirra hluta sem haldlagðir voru við leit að […], Akureyri og í bifreiðinni […] þann 12. maí 2024. Í skýrslunni fundust tveir samskonar símar eins og getið er um í ákærunni. Annar þeirra var í umbúðum við haldlagningu. Í lögregluskýrslu af ákærða, Egidijus, þann 17. maí 2024 voru honum sýnd viðkomandi myndbönd úr öryggismyndavélum og sýndar myndir af viðkomandi munum sem fundust við húsleit eftir handtöku ákærðu. Ákærði, Egidijus, kvaðst ekki þekkja sig á myndböndunum og viðurkenndi ekki að hafa stolið viðkomandi munum. Í skýrslu hjá lögreglu þann 17. maí 2024, var ákærða, Vygantas, kynnt myndbönd úr öryggismyndavélum Elko á Akureyri, þann 2. maí og 11. maí 2024. Ákærði hafi þekkt sig og ákærða, Egidijus á myndböndunum í bæði skiptin. Ákærði viðurkenndi að hafa stolið úr versluninni Elko þann 2. maí og 11. maí 2024 einum síma og einni spjaldtölvu í félagi við ákærða, Egidijus. Ákærði hafi ekki verið viss hvort hann hafi stolið einni eða tveimur spjaldtölvum í umrætt sinn. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærði, Egidijus hafi framið þann verknað sem honum er gefinn að sök. Brot ákærða eru rétt heimfært til refsiákvæðis í ákæru. Í 4. ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Vygantas, sakaðir um að hafa í sameiningu þann 11. maí 2024 stolið úr versluninni Elko, Tryggvabraut 18, Akureyri, tveimur spjaldtölvum af gerðinni Samsung Galaxy Fold5, samtals að verðmæti 189.990 krónur. Um þátt ákærða, Vygantas, vísast til umfjöllunar hér að framan, þar sem hann var sakfelldur samkvæmt þessum ákærulið. Ákærði, Egidijus, hefur neitað sök samkvæmt þessum ákærulið og kaus að tjá sig ekkert um sakarefnið fyrir dómi, eins og áður greinir. Fyrir liggja upptökur úr eftirlitsmyndavélum verslunarinnar, dagsettar 2. maí 2024 á tímabilinu kl. 12:11:00 til 12:29:53. Andlit og útlit ákærðu á framangreindum upptökum og viðkomandi skjáskotum samrýmist öðru myndefni af þeim sem eru meðal rannsóknargagna. Hið sama á við um útlit ákærða, Egidijus, eins og það birtist við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. Af upptökunum sést að ákærði, Egidijus var með bónuspoka við komu í verslunina. Inni í versluninni tekur ákærði, Vygantas, tvo hluti úr hillu, sem samsvara spjaldtölum. Ákærði, Egidijus, setur síðan þessa hluti í dökkan poka, sem hann kemur fyrir í bónuspokanum. Að því loknu fóru ákærðu saman út úr versluninni, án þess að framvísa vörunum til greiðslu. Í málinu liggur fyrir munaskýrsla, sem tekur meðal annars til þeirra hluta sem haldlagðir voru við leit að […], Akureyri og bifreiðarinnar […] þann 12. maí 2024. Í skýrslunni fundust tvær samskonar spjaldtölvur eins og getið er um í ákærunni. Um afstöðu ákærðu til sakarefnisins hjá lögreglu vísast til umfjöllunar um 3. ákærulið hér að framan. Þegar litið er til gagna málsins þykir sannað að ákærðu hafi framið þann verknað sem þeim er gefin að sök. Brot ákærðu eru rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákæru. Í 5. ákærulið eru ákærðu, Egidijus og Judita, sökuð um að hafa á tímabilinu 15. desember 2023 til 15. maí 20024 aflað sameiginlega ávinnings með þjófnuðum og sölu þýfis eða öðrum refsiverðum brotum, samtals að fjárhæð 4.064.700. Er þessi háttsemi talin varða við 1. sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga. Ákvæðinu var breytt í núverandi horf með 7. gr. laga nr. 149/2009. Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi til laganna segir að með breytingunni sé gildissvið peningaþvættisbrotsins samkvæmt 1. mgr. 264. gr. rýmkað þannig að það taki ekki einungis til frumbrota á almennum hegningarlögum heldur einnig refsiverðra frumbrota á öðrum lögum. Jafnframt væri markmið lagabreytingarinnar að gera ákvæðið skýrara með því að orða í lokamálslið 1. mgr. greinarinnar sérstaklega þær verknaðaraðferðir sem slíkt brot tæki til, með hliðsjón af 1. og 2. mgr. 6. gr. Palermó-samningsins. Við túlkun einstakra verknaðarþátta yrði sem fyrr að horfa til þess að peningaþvætti væri í megindráttum hver sú starfsemi sem lyti að því að fela uppruna og eiganda fjár sem væri ávinningur af brotastarfsemi. Í athugasemdum laganna með 2. mgr. 264. gr. laganna kemur fram að framning frumbrots og síðar tilkomið þvætti á ávinningi sem af því stafar verða þannig tvö sjálfstæð brot er í frumvarpsgreininni áréttað að 77. gr. almennra hegningarlaga um brotasamsteypu gildi eftir því sem við á. Ákærða, Judita, krefst frávísunar frá dómi varðandi þennan ákærulið vegna vanreifunar. Verknaðarþáttum háttseminnar sé ekki nægilega lýst og að viðkomandi frumbrot séu ekki tilgreind þannig að þau samsvari ávinningi samkvæmt ákærunni. Dómurinn telur að ákærðu hafi verið fært að taka afstöðu til sakargifta samkvæmt ákærunni og halda uppi vörnum. Með ákærunni hafi verið lagður fullnægjandi grundvöllur að þessum hluta málsins og verður kröfu ákærðu um frávísun hafnað og þessi hluti málsins tekinn til efnislegrar meðferðar. Sjá til hliðsjónar úrskurð Landsréttar í máli nr. 784/2025 og dóm Hæstaréttar í máli nr. 55/2025. Ákærðu krefjast bæði sýknu á grundvelli þess að ekki hafi tekist að sanna tengsl þeirra við sakarefnið og gögn málsins séu ekki nægileg til að sanna þann ávinning sem tilgreindur er í ákærunni. Rannsakaður var einn bankareikningur, sem skráður var á ákærðu, Judita, á tímabilinu 15. desember 2023 til 15. maí 2024. Í greiningu lögreglu fyrir ofangreint tímabil var niðurstaðan sú að óútskýrðar tekjur hennar hafi numið samtals kr. 4.064.700. Í ákæru er byggt á því að ákærðu, Egidijus og Judita og hafi aflað saman á tímabilinu ávinnings að sömu fjárhæð kr. 4.064.700, með þjófnuðum, sölu þýfis eða öðrum refsiverðum brotum. Ákærða, Judita, krefst einkum sýknu á þeim grundvelli að ekkert samræmi sé á milli þeirra þjófnaðarbrota sem hún er sökuð um í málinu og þess ætlaða ávinnings sem tilgreindur er í ákærunni. Auk þess byggir ákærða sýknukröfu sína á því að gögn málsins nægi ekki til sönnunar á því að hluti innborgana á bankareikning hennar á viðkomandi tímabili sé óútskýrður. Í dómaframkvæmd hefur ekki verið gerð sú krafa, að fyrir liggi hvaða refsiverð brot sakbornings sé nákvæmlega um að ræða, heldur hefur verið talið nægja að sýna fram á með óyggjandi hætti að útilokað sé að ávinningurinn sé til kominn á lögmætan hátt, sjá til hliðsjónar dóma Hæstaréttar í máli nr. 28/2021 og nr. 55/2025. Að mati dómsins styðja skjalleg sönnunargögn málsins þá niðurstöðu að útilokað sé að ávinningur sá sem ákæra tilgreinir sé af lögmætum toga, enda hefur ákærða engar skýringar gefið á þeim verulega mun sem leiddur hefur verið í ljós á ráðstöfunartekjum hennar og skráðum tekjum á viðkomandi tímabili. Ávinningur þessi tengist eingöngu bankareikningi í eigu ákærðu, Judita. Þegar litið er til allra gagna málsins þykir hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærða, Judita, hafi framið þann verknað sem henni er gefin að sök. Brot ákærðu er rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru. Eins og fyrr greinir byggir ákærði, Egidijus, kröfu sína um sýknu meðal annars á því að hann hafi ekki tengsl við sakarefnið. Samkvæmt gögnum málsins má ráða að ákærðu, Egidijus og Judita, hafa verið kærustupar þegar rannsókn málsins hófst 11. maí 2024, en ekki liggja fyrir í málinu gögn um að þau hafi verið í sambandi frá 15. desember 2023. Þau voru ekki með sama lögheimili á þessum tíma og fór húsleit vegna málsins fram á lögheimili hvors um sig. Ekki liggja fyrir í gögnum málsins upplýsingar um bein fjárhagsleg tengsl þeirra. Í málinu liggur fyrir að ákærði, Egidijus, notaði stundum greiðslukort, ákærðu, Judita, við undirbúning framangreindra brota. Þau hafa hér að framan verið sakfelld í átta ákæruliðum fyrir sameiginleg þjófnaðarbrot á tímabilinu 2. maí til 11. maí 2025. Þau voru ekki samsköttuð á þessu tímabili samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og ekki hefur komið fram í málinu að þau eigi börn saman. Í gögnum málsins eru engar vísbendingar um færslur sem auðkenndar eru ákærða, Egidijus, í bankagögnum hennar, hvorki innborganir eða útborganir. Ákærðu voru ekki spurð um sakarefnið hjá lögreglu. Eins og áður greinir neituðu þau bæði alfarið að tjá sig fyrir dómi. Ákæran byggir eingöngu á greiningu bankagagna sem varða ákærðu, Judita. Þegar atvik málsins eru virt í heild þykir skynsamlegur vafi á því að ákærði, Egidijus, hafi framið þann verknað sem í ákæru greinir. Með vísan til 108. gr. og 109. gr. laga um meðferð sakamála er ákærði, Egidijus, því sýknaður af þessum ákærulið. Í ákæru er þess krafist að ákærðu, Egidijus og Judita, sæti upptöku á haldlögðum ávinningi að fjárhæð 123.000 krónur, samkvæmt 1. mgr. sbr. 2. mgr. 69. gr. , 1. mgr. 69. gr. b og 69. gr. c almennra hegningarlaga. Ákærði, Egidijus, hefur verið sýknaður af peningaþvætti samkvæmt ákærunni og af þeim sökum er fyrrgreindri kröfu um upptöku hafnað gagnvart honum. Ákærða, Judita, hefur hins vegar verið sakfelld fyrir peningaþvætti. Slíkt brot er til þess fallið að hafa í för með sér verulegan ávinning og getur varðað sex ára fangelsi. Í málflutningi verjanda ákærðu, Judita, kom fram að viðkomandi fjárhæð hafi verið eftirstöðvar af sérgreindu orlofi ákærðu, sem hún hafi fengið greitt þann 13. maí 2024. Þann dag hafi hún fengið greiðslu inn á bankareikning sinn nr. 111-26-19941 að fjárhæð kr. 192.976. Sama dag hafi verið millfærðar 193.000 krónur af fyrrgreindum reikningi inn á annan reikning á nafni ákærðu nr. 123-15-68428. Staða þess reiknings eftir framangreinda millifærslu var kr. 229.004. Síðan voru lagðar inn á reikninginn 996 krónur og teknar út af honum samtals 107.000 krónur í átta færslum. Innstæða á reikningi við haldlagningu hans þann 27. maí 2024 var 123.000 eins og fyrr greinir. Dómurinn telur að fyrrgreind orlofsgreiðsla hafi verið tilkomin með lögmætum hætti, enda er hún tilgreind í rannsóknargögnum lögreglu, sem skýrð innborgun á reikning ákærðu, Judita og er því ekki hluti af reiknuðum ávinningi samkvæmt ákærunni. Af gögnum málsins verði ráðið að ákærðu hafi haldið þessari fjárhæð sérgreindri á bankareikningi og hafi hún því ekki blandast við þann hluta fjármunanna sem var tilkominn með ólögmætum hætti. Af þeim sökum og er hafnað kröfu um að ákærða, Judita, sæti upptöku á 123.000 krónum sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins.
VII.
Ákærði, Egidijus, er fæddur í apríl 1992. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 19. nóvember 2025, gekkst ákærði undir tvær lögreglustjórasáttir þann 4. desember 2023 fyrir umferðalagabrot og fíkniefnalagabrot. Í báðum tilvikum hafði ákærði gerst sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna og án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Málunum var lokið með greiðslu sektar og var ákærði sviptur ökurétti samtals í 27 mánuði frá 4. desember 2023. Þann 14. júní 2024 gekkst ákærði undir lögreglustjórasátt fyrir brot á 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga fyrir akstur án ökuréttinda með greiðslu sektar og 5. nóvember 2025 gekkst hann undir lögreglustjórasátt fyrir að aka sviptur ökurétti með greiðslu sektar. Að öðru leyti kemur sakaferill ákærða ekki til skoðunar við ákvörðun refsingar. Ákærði hefur hér að framan verið sakfelldur í tólf ákæruliðum fyrir þjófnaðarbrot og voru tíu þeirra unnin í samverknaði. Einnig hefur hann verið sakfelldur fyrir eignaspjöll og akstur sviptur ökurétti. Öll brot ákærða, sem hann hefur verið sakfelldur fyrir samkvæmt framangreindum ákærum eru framin áður en hann gekkst undir tvær síðastgreindar lögreglustjórasáttir og verður honum því gerður hegningarauki við þær, sbr. 78. gr. laga nr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að framangreindu virtu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga og einnig með vísan til 6. tl. 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. sömu laga er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. sömu laga. Með heimild í 4. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga verður ákærði einnig dæmdur til að greiða 120.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í sex daga. Ákærða, Judita, er fædd í júlí 1991. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur hún ekki áður gerst sek um refsiverðan verknað. Ákærða er nú sakfelld í átta ákæruliðum fyrir þjófnaðarbrot, sem öll voru unnin í samverknaði og auk þess er hún sakfelld fyrir peningaþvætti. Að virtu sakarefni málsins, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og einnig með vísan til 6. tl. 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. sömu laga er refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærða almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. sömu laga, með síðari breytingum. Ákærði, Vygantas, er fæddur í mars 1994. Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur hann ekki áður unnið til refsingar sem hefur áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu. Ákærði er nú sakfelldur í fimm ákæruliðum fyrir þjófnaðarbrot, sem fjögur voru unnin í samverknaði og auk þess er hann sakfelldur fyrir eignaspjöll og fíkniefnalagabrot. Að virtu sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og einnig með vísan til 6. tl. 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. sömu laga er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. sömu laga, með síðari breytingum. Með heimild í 4. mgr. 77. gr. almennra hegningarlaga verður ákærði einnig dæmdur til að greiða 58.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í fjóra daga. Samkvæmt kröfu í fimmtu ákæru og með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 eru gerð upptæk 1,76 grömm af marijúana, sbr. efnaskrárnúmer 53.869, sem lagt var hald á við rannsókn málsins.
VIII.
Einkaréttarkröfur:
- Einkaréttarkröfur Krónunnar ehf. eru settar fram af ótilgreindum starfsmanni fyrir hönd félagsins. Ekki verður því séð að hann sé fyrirsvarsmaður félagsins í skilningi 4. mgr. 17. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 eða að hann hafi réttindi til málflutnings fyrir dómi, sbr. b-lið 2. mgr. 173. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Af þeim sökum brestur hann hæfi til þess að setja fram bótakröfu í málinu og ber því að vísa kröfunum frá dómi.
- Einkaréttarkröfur Haga hf. eru settar fram af forstjóra félagsins. Krafist er skaðabóta vegna ákæruliða 1-6 samtals að fjárhæð 301.499 krónur. Gegn báðum ákærðu, Egidijus og Judita, er samtals krafist óskipt 192.305 krónur og gegn ákærða, Egidijus, er krafist 109.194 króna. Kröfurnar eru studdar nægilegum gögnum og ákærðu hafa verið sakfelld fyrir viðkomandi þjófnaðarbrot. Verður því fallist á kröfurnar með vöxtum eins og nánar greinir í dómsorði. Dráttarvextir af kröfum reiknast mánuði frá birtingu ákæru og bótakröfu, fyrir ákærðu, Judita þann 17. febrúar 2025, en var birt fyrir ákærða Egidijus þann 18. febrúar 2025. Þar sem ákæruvaldið sótti þing í málinu fyrir hönd kröfuhafa við þingfestingu þess og einnig á síðari stigum, sbr. 2. mgr. 174. gr. laga um meðferð sakamála verður honum ekki dæmdur málskostnaður úr hendi ákærðu.
- Einkaréttarkrafa Lyf og heilsu hf. er sett fram af viðkomandi lyfsöluleyfishafa. Ekki verður séð að hann sé fyrirsvarsmaður félagsins í skilningi 4. mgr. 17. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 eða að hann hafi réttindi til málflutnings fyrir dómi, sbr. b-lið 2. mgr. 173. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Af þeim sökum brestur hann hæfi til þess að setja fram bótakröfu í málinu og ber því að vísa kröfunum frá dómi.
- Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands krefst skaðabóta að fjárhæð 179.230 á hendur ákærðu, Egidijus og Vygantas. Eignaspjöll þau sem ákærðu hafa verið dæmir fyrir unnu þeir hvor í sínum fangaklefa, án þess að um samverknað þeirra hafi verið að ræða. Kröfunni er beint óskipt að báðum ákærðu á grundvelli reikninga vegna viðgerða, sem ekki hafa verið sundurliðaðir eftir viðkomandi fangaklefum. Þykir skorta á sundurliðun og skýrleika í málatilbúnaði kröfuhafa varðandi dómkröfur og gögn. Fer það í bága við d- og g-lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991. Að mati dómsins hefur kröfuhafi því ekki lagt þann grundvöll að kröfunum sem nauðsynlegur er til að efnisdómur verði lagður á. Er kröfunni því vísað frá dómi.
- Einkaréttarkröfur Elko ehf. nr. 1 og 2 eru settar fram af einstaklingi fyrir hönd félagsins. Ekki verður því séð að hann sé fyrirsvarsmaður félagsins í skilningi 4. mgr. 17. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 eða að hann hafi réttindi til málflutnings fyrir dómi, sbr. b-lið 2. mgr. 173. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála,. Af þeim sökum brestur hann hæfi til þess að setja fram bótakröfu í málinu og ber því að vísa kröfunum frá dómi.
IX.
Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga um meðferð sakamála og málsúrslita, þar sem ákærðu, Egidijus og Judita eru sýknuð af hluta ákæruatriða, verða þau dæmd til að greiða hluta alls sakarkostnaðar. Gagnvart ákærða, Egidijus er um að ræða 3/4 málsvarnarlauna skipaðs verjanda hans auk 3/4 ferðakostnaðar verjandans. Gagnvart ákærðu, Judita, er um að ræða 4/5 málsvarnarlauna skipaðs verjanda hennar, hans auk 4/5 ferðakostnaðar verjandans. Um er ræða vinnu beggja á rannsóknarstigi og fyrir dómi, að meðtöldum virðisaukaskatti, eins og greinir í dómsorði. Sakarkostnaður þeirra greiðist að öðru leyti úr ríkissjóði. Með vísan til 1. mgr. 235. gr. laga um meðferð sakamála verður ákærði, Vygantas, dæmdur til að greiða þóknun tilnefnds verjanda síns á rannsóknarstigi, að meðtöldum virðisaukaskatti, auk ferðakostnaðar hans, eins og greinir í dómsorði. Ingvar Þóroddsson, settur héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Egidijus Smatauskas, sæti fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði greiði 120.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í tíu daga. Ákærða, Judita Kulikauskiene, sæti fangelsi í fjóra mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærða almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði, Vygantas Smatauskas, sæti fangelsi í þrjá mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði greiði 58.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu dóms þessa, en sæti ella fangelsi í fjóra daga. Ákærði, Vygantas Smatauskas, sæti upptöku á 1,76 grömmum af maríjúana. Bótakröfum Krónunnar ehf., Lyf og heilsu hf., Ríkissjóðs Íslands og Elko ehf. er vísað frá dómi. Ákærðu, Egidijus og Judita, greiði Högum hf. óskipt 192.305 krónur með vöxtum skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 53.896 krónum frá 1. maí 2024 til 2. maí 2024, en þá af 101.910 krónum til 4. maí 2024, en þá af 168.907 krónum til 9. maí 2024, en þá af 192.305 krónum til 18. mars 2024, en þá með dráttarvöxtum, skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga til greiðsludags. Ákærði, Egidijus, greiði Högum hf. 109.194 krónur með vöxtum skv. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 49.898 krónum frá 5. maí 2024 til 7. maí 2024, en þá af 109.194 krónum til 18. mars 2024, en þá með dráttarvöxtum, skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga til greiðsludags. Ákærði, Egidijus, greiði 2.146.905 krónur í sakarkostnað þar með talið 3/4 hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Júlíar Óskar Antonsdóttur, lögmanns, sem nema alls 2.862.540 krónum. Ákærða, Judita, greiði 2.263.386 krónur í sakarkostnað þar með talið 4/5 hluta málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Ásgeirs Arnar Blöndal, lögmanns, sem nema alls 2.650.500 krónum, auk 4/5 hluta af útlögðum kostnaði hans, sem nemur 178.732 krónum. Að öðru leyti greiðist sakarkostnaður ákærðu, Egidijus og Judita, úr ríkissjóði. Ákærði, Vygantas, greiði þóknun tilnefnds verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar, lögmanns, 856.995 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, auk ferðakostnaðar hans 72.135 krónur.